Sex slösuðust, þar af tvö alvarlega, í þriggja bíla árekstri á Suðurlandsvegi, austan Sólheimajökuls, á sjöunda tímanum í kvöld. RÚV greinir frá. Þyrla Landhelgisgæslunnar auk þriggja sjúkrabíla og dælubíls voru kölluð út. Þyrlan flutti fjóra til aðhlynningar í Reykjavík, þar af voru tveir alvarlega slasaðir. Auk þess voru tveir fluttir með sjúkrabíl á Selfoss.
Tveir slösuðust alvarlega í þriggja bíla árekstri – Beita þurfti klippum til að ná slasaðri stúlku úr bíl