Samtök gegn kynþáttafordómum og mismunun (SgKM) boðuðu til sinna mótmæla við Dag Hammerskjolds Allé, í um 750 metra fjarlægð frá upphafspunkti mótmælagöngu Dönsku þjóðarinnar.
Mótmælafundur SGKM ber heitið „Nei við brottvísunum: Jöfn réttindi og tækifæri fyrir alla“
Greint var frá því í gær að stjórnvöld fimm Evrópuríkja, Danmerkur, Hollands, Þýskalands, Austurríkis og Grikklands, vinni í sameiningu að gerð samnings við eitt ríki utan Evrópusambandsins um að koma upp brottvísunarbúðum. Þangað myndu ríkin senda fólk sem neitað hefur verið um dvöl.
Stjórnvöld í Danmörku stefna að því að senda umsækjendur um alþjóðlega vernd í brottvísunarbúðir utan ESB strax á næsta ári.
Á Facebook-síðu Danska fólksins er að finna auglýsingu fyrir mótmælagöngu samtakanna og nokkurs konar leiðbeiningar eða minnislista fyrir hana. Þar er til að mynda að finna þrettán viðmið fyrir mótmælafundinn.
Meðal viðmiða samtakanna er að mótmælendur verði ekki ögrandi og að þeir beri engar grímur eða öfgafull tákn, eða séu klæddir í einkennisbúninga. Þá eru hatursfull slagorð bönnuð.
Mótmælendur eru hvattir til að leiða ögranir annarra hjá sér. Þá segir að fólki sé velkomið að fá sér bjór í mótmælagöngunni en að það verði að huga að því að verða ekki of ölvað.
Þá voru mótmælendur beðnir um að hafa með sér danska fánann og nóg af vatni, og að huga vel að öryggi barna og aldraðra.
Mótmælagangan hófst við lestarstöðina-Trianglen á Østerbro klukkan 12.
Góðan daginn.
Tvenn mótmæli andstæðra fylkinga hófust á hádegi á Østerbro í Kaupmannahöfn í dag. Á vef danska ríkisútvarpsins, DR, segir að ekki hafi verið gefið leyfi fyrir mótmælunum. Aðgerðasinnar af vinstri og hægri vængjum stjórnmálanna standi að þeim.
Í dag er fánadagur til heiðurs dönskum hermönnum sem hafa sinnt þjónustu erlendis
Á myndum frá vettvangi sést lögregla í átökum við mótmælendur með kylfum. Einhverjir mótmælendur hafa verið fjarlægðir af vettvangi með valdi.
Samtökin Danska þjóðin (d. Det Danske Folk) standa að mótmælum undir yfirskriftinni „Ganga fyrir Danmörku“. Þau mótmæla íslamsvæðingu, sjaríalögum, trúarlegri öfgahyggju, pólitísku ofbeldi og alræðisstefnu.
Samtök gegn kynþáttafordómum og mismunun (d. Fællesinitiativet mod Racisme og Diskrimination) standa að gagnmótmælum gegn kynþáttafordómum.
Lögregla er með talsverðan viðbúnað vegna mótmælanna. Í myndefni frá vettvangi má sjá blys á lofti og fjölda lögreglumanna með óeirðabúnað.
Ég heiti Guðmundur Atli Hlynsson og ætla að fylgjast með þróun mála í miðborg Kaupmannahafnar.