Bilun kom upp hjá fjártæknifyrirtækinu Teya í dag, sem hefur haft áhrif á kortagreiðslur. Langar biðraðir eru til að mynda í verslun IKEA í Kauptúni.
„Það er einhver bilun í kerfum Teya. Þetta er ekki bara hjá okkur heldur fleiri aðilum,“ segir Stefán Rúnar Dagsson, framkvæmdastjóri Ikea. Hann segir að bilunin hafi komið upp fyrir tæpum klukkutíma og reynt sé að leysa vandann. „Við erum að reyna að redda okkur með GSM-posum,“ sagði hann.
„Þetta er náttúrlega agalegt, þetta er það versta sem maður getur lent í að þetta komi upp á.“
Ágústa Margrét Björnsdóttir, markaðsstjóri Teya, sagðist ekki hafa „komið sér inn í þetta“ en að starfsmenn í þjónustuveri fyrirtækisins væru á fullu að reyna að leysa málið. Þegar hringt er í þjónustuver fyrirtækisins fást upplýsingar um að bilun sé í kerfinu og unnið að lagfæringu.