Bandaríkjaher hæfði þrjú írönsk olíuflutningaskip í loftárásum í hefndarskyni eftir að Íranir skutu á bandarísk herskip.
Árásirnar voru í Ómanflóa og Persaflóa, beggja megin Hormússunds.
Tvö olíuflutningaskip Írana eru ónothæf eftir árásirnar og þriðja gjöreyðilagt. Árásirnar voru svar Bandaríkjahers við loftárásum Írana sem beindust að tveimur bandarískum skipum, flugmóðurskipi og herskipi, en misstu marks. Engir Bandaríkjamenn særðust í þeim.
Miðstjórn Bandaríkjahers, Centcom, greindi frá árásunum á samfélagsmiðlinum X í dag. Haft er eftir flotaforingjanum Brad Cooper að í hvert sinn sem Íranir ráðist á skip Bandaríkjahers verði því svarað með umfangsmeiri árásum – fyrir hverja árás á tvö skip verði þremur sökkt.
Haft er eftir Cooper að Bandaríkjaher muni ekki hika við að tortíma olíuflota Írans ef öryggi bandarísks herliðs sé ógnað.
Sextíu daga vopnahléi á milli Bandaríkjanna og Írans lauk formlega í síðasta mánuði en fátt gefur til kynna að átökum ríkjanna ljúki í bráð.
Bandaríkjaher segir olíuflutningaskipin þrjú tengd margmilljarða dala skugganeti Írans sem fjármagni íranska byltingarvörðinn eða Íransher. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa undanfarið lagt aukna áherslu á efnahagslegar aðgerðir gegn Írönum, til að mynda með því að boða þvingunaraðgerðir gegn aðilum með fjárhagsleg tengsl við ríkið.
Miðstjórn Bandaríkjahers deildi myndskeiði af árásunum á olíuflutningaskipin þrjú. Myndskeiðið er hér fyrir neðan.