Kátur er íslenskur fjárhundur á besta aldri, elskaður og dáður af fjölskyldu sinni. Fyrir nokkru komst Kátur í hann krappann og var vart hugað líf.
„Við vorum í heimsókn hjá fólki og hann var úti í garði,“ segir Hafdís Brynja Guðmundsdóttir eigandi Káts.
„Það var gangstétt við hliðina á garðinum. Við höfðum engar áhyggjur af honum, þetta var bara lokaður garður. Þegar við vorum að fara, var hann eitthvað skrýtinn en við spáðum ekkert meira í það.“
Stóð varla undir sér og ældi
Heilsufar Káts versnaði. „Við settum hann út, hann varla stendur undir sér og ælir. Við höldum áfram upp í Borgarnes, líst ekkert á blikuna og förum með hann á dýraspítala.“
Þar fékk Kátur læknishjálp, dælt var upp úr honum og niðurstaða dýralæknis var að hann hefði orðið fyrir eitrun.
„Út frá nikótínpúða,“ segir Hafdís. „Og það passar alveg, því garðurinn er við gangstíg og fólk hendir þessum nikótínpúðum út um allt.“
„Það var tvísýnt með hann“
Kátur komst aftur til fullrar heilsu. „En ef við hefðum ekki farið með hann á dýraspítalann, þá hefði hann bara drepist úr þessari eitrun,“ segir Hafdís.
Hann var það veikur? „Já, það var tvísýnt með hann.“
Hélduð þið að þið mynduð missa hann? „Já.“
En þegar þið eruð úti að ganga með Kát. Sjáið þið mikið af nikótínpúðum á förnum vegi? „Já, mjög mikið. Alls staðar. Og ég er mjög vel vakandi því hann er mikið til í að smakka það sem á vegi hans verður. Þannig að ég er alltaf með varann á mér.“
Grunur um að hundar hafi dáið eftir að hafa borðað púða
Kátur er ekki eini hundurinn eða eina dýrið sem hefur veikst af því að innbyrða nikótínpúða og reglulega er leitað með hunda til dýralækna þar sem grunur leikur á um slíkt. „Það er oft erfitt samt að vita hvers lags eitrun er, því fólk sér oft ekki hvað það er sem þeir eru að éta,“ segir Halldóra Hrund Guðmundsdóttir dýralæknir á Dýraspítalanum í Víðidal
Nikótín er örvandi efni sem virkar á miðtaugakerfið. Hundar hafa talsvert minna þol fyrir efninu en fólk og það hefur ýmis áhrif á þá, segir Halldóra. „Fyrst og fremst byrjar þetta á uppköstum og niðurgangi, meltingarfæraeinkennum og þróast svo út í skjálfta og jafnvel krampa.“
Veistu um einhver dæmi þess að hundur hafi dáið eftir að hafa innbyrt svona púða?„Allavegana þar sem grunur er um það.“
Ekki bara nikótínið sem er hundum hættulegt
Halldóra segir að púðarnir innihaldi oft fleiri efni sem geti reynst hundum skeinuhætt. „Þeir geta innihaldið sætuefni og Xylitol er t.d. mjög hættulegt fyrir hunda líka. Þannig að það er ekki bara nikótínið sem við þurfum að vera hrædd við.“
Það er algeng sjón að sjá notaða nikótínpúða á víðavangi þar sem þeim hefur verið hent. Halldóra segir erfitt að hindra að hundar komist í þá. „Í rauninni myndi maður fyrst vilja að fólk hætti að henda þessu út um allt. Því þetta er stórhættulegt.“