Úrhellisrigning hefur verið á Galapagoseyjum í Austur-Kyrrahafi síðan síðdegis á föstudag. Að minnsta kosti einn hefur látist og tveggja er saknað. Þá hafa þúsundir fjölskyldna neyðst til að yfirgefa heimili sín.
Úrkoman er sögð tengjast veðurfyrirbrigðinu El Niño, sem hefur magnað upp rigningar, storma og gróðurelda víða um heim undanfarið.
Íbúar á eyjunni Santa Cruz, sem er fjölmennasta eyjan í eyjaklasanum, þurftu að koma eigum sínum hratt í skjól en stórviðrið kom íbúum og yfirvöldum á óvart.
Eiga ekkert eftir nema fötin
„Þetta er í fyrsta skipti sem eitthvað þessu líkt hefur gerst,“ segir Fanny Uribe, borgarstjóri Santa Cruz, í samtali við AFP-fréttaveituna. „Þetta náttúrufyrirbrigði fór virkilega fram úr því sem við gerðum ráð fyrir.“
Samkvæmt bráðabirgðatölum sveitarfélagsins á Santa Cruz hafa að minnsta kosti tvö þúsund fjölskyldur orðið fyrir áhrifum af veðrinu. „Þau hafa misst gjörsamlega allt. Það eina sem þau eiga eftir eru fötin sem þau voru í,“ bætti Uribe við.
Á Galapagoseyjum búa alls 28.500 manns á fjórum eyjum. Eyjaklasinn er um þúsund kílómetra vestur af meginlandi Suður-Ameríku og tilheyrir Ekvador.