Lögreglan í Suður-Yorkshire á Englandi hefur handtekið mann sem er grunaður um morðið á Ann Widdecombe.
Hinn grunaði er 28 ára gamall breskur ríkisborgari. Í tilkynningu lögreglu er sérstaklega tekið fram að hann sé hvítur á hörund.
Widdcombe var atvinnumálaráðherra og fangelsismálaráðherra fyrir Íhaldsflokkinn en gekk svo til liðs við Brexit-flokkinn sem síðar varð Umbótaflokkurinn. Hún sat á þingi til ársins 2010 og á Evrópuþingi þar til Bretar gengu úr Evrópusambandinu árið 2020.
Lögreglan segir ekkert benda til þess að glæpurinn hafi verið pólitískur.