Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild eftir harðan árekstur á hringtorginu við Suðurlandsveg og Breiðholtsbraut móts við Rauðavatn laust upp úr klukkan 9 í morgun.
Sendibifreið ók á fólksbifreið sem endaði á hliðinni og að sögn Sigurjóns Hendrikssonar, varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðinu, var einn fluttur með sjúkrabíl en ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður.
Búið er loka vettvangi og má reikna með töfum á umferð en lögreglan er á svæðinu og stýrir umferð.