Eina íslenska kollagenið framleitt á Blönduósi
„Þetta er smá flókið kannski við fyrstu sýn, en við hjá fyrirtækinu Kavita erum meirihlutaeigendur í Vilko á Blönduósi. Svo er framleiðslan undir framleiðslufyrirtæki sem heitir Nordpro og það fyrirtæki er með aðsetur inni í Vilko. Við sem sagt samnýtum starfsfólkið, húsnæðið og hugvitið og svo er Kavita söluendinn sem á vörumerkin. Við erum með 20 störf þarna fyrir norðan, erum að þróa og framleiða íslensk fæðubótarefni og leggjum áherslu á hreinleika og að allt sé náttúrulegt og hreint,“ segir Katrín Amni, eigandi Kavita.
Katrín hefur verið eigandi í 10 ár hjá Kavita, sem hét áður Náttúrusmiðjan, en hún segir að árið 2012 hafi Vilko byrjað fæðubótarframleiðslu í hylkjum. Katrín segir að Kári Kárason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vilko, hafi fundist frábær hugmynd að fara að hylkja eitthvað af þeim kryddum sem Vilko var að framleiða, en fyrir þann tíma var búið að rannsaka til dæmis íslensk fjallagrös á þessum slóðum.
„Við …