Í tilkynningu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar segir að vindur geti farið í 30 til 35 metra á sekúndu í hviðum á norðanverðu Snæfellsnesi, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi til Eyjafjarðar.
Aðstæður geta verið varasamar ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.
Þá er varað við talsverðu sandfoki á morgun á hálendinu norðan Vatnajökuls.