Við borunarframkvæmdirnar í Skammadal er borað eftir heitu vatni fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Bora á sjö holur og í tilkynningu Veitna þann 6. maí er greint frá losun vatns í Varmá sem beri með sér sand og svarf. Mótvægisaðgerðir vegna losnunarinnar hafa hins vegar ekki haft tilætluð áhrif.
Varmáin rennur í gegnum Álafosskvosina og síðan framkvæmdir hófust hafa áhrifin verið umtalsverð, bæði á lífríki og ásýnd árinnar.
„Ekki séð neitt líf í ánni síðan þetta byrjaði“
Íbúi sem búið hefur við Álafoss í tuttugu og sjö ár þekkir ána vel og segir áhrifin á lífríki árinnar umtalsvert.
„Fyrir helgi þá sá ég þrjá andarunga dauða og kolluna elta þá niður ána. Svo hef ég ekki séð neitt líf í ánni síðan þetta byrjaði,“ segir hnífasmiðurinn Páll Kristjánsson sem býr alveg við Álafossinn í Varmá.
Miklar litabreytingar hafa sést á ánni sem venjulega er tær. Á mánudag var áin dökkbrún og í kjölfarið útbjuggu Veitur nýja og stærri svarfþró sem er ætlað að taka á móti úrgangi.
Í dag mátti sjá hvíta slikju á ánni og Páll hefur áhyggjur, vanalega geti hann til dæmis séð hornsíli og litla silunga.
„Áin var tær í nokkra klukkutíma og þá labbaði ég hérna niður og var að leita á þeim stöðum þar sem ég sé venjulega líf. Því ég er að fylgjast með þessu, ég hef gaman af þessu og fylgist með. Það var allt horfið,“ segir Páll.
Framkvæmdirnar í Skammadal eru umfangsmiklar en í dag sendu veitur frá sér tilkynningu um að þær yrðu stöðvaðar til að lífríkið fengi að njóta vafans.
Þá verða óháðir sérfræðingar fengnir til að meta áhrif framkvæmdanna á Varmá.
Páll segir svæðið skipta íbúa máli, börn sem oft séu þar að leik sjáist ekki núna og vont sé að horfa upp á hvaða áhrif framkvæmdirnar hafa haft.
„Ég varð bara reiður, endalaust reiður. Þetta er svo mikil svívirðing við þessa á, þetta svæði hérna hjá okkur er friðað. Þetta á ekki og má ekki gerast.“