Inga fór í átján daga veikindaleyfi í lok maí og sagði það vera vegna flensu, en fréttastofu hafa á undanförnum vikum borist ábendingar um að ekki væri allt sem sýndist þegar hún fór í veikindaleyfi. Ýmsir vildu meina að Ingu þætti sopinn góður, hún hafi viljað taka á áfengissýki og látið sig hverfa í afvötnun.
Inga kannaðist vel við þessar sögusagnir og sagðist sjálf hafa heyrt af þessu og í ýmsum útgáfum. En hún sagði ekkert hæft í þessu.
„Nei, það er ekki rétt og ég skála í mínum kokteil hvenær sem mér dettur í hug, og þá er ég bara löngu fallin,“ segir Inga í samtali við fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
„Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá.“
Hún kveðst ekki eiga við nokkurn áfengisvanda að etja en hún hafi þó heyrt frá fólki í kringum sig sem hafi verið spurt þessara spurninga.
„Ég var líka búin að heyra af því. En veistu, Inga hefur ekki farið á Vog.“
Eftir að Vísir hafði rætt við hana um málið í morgun fór Inga í beina útsendingu á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem hún blés aftur á þessar sögusagnir.
Þar segist Inga blessunarlega hafa verið svo heppin að hafa aldrei þurft að glíma við þennan erfiða sjúkdóm sem alkóhólismi er og því ekki notið frábærrar þjónustu sem fólki bjóðist á Vogi.
Segist hún ekki vita hverjum detti það í hug að rúlla svona kjaftasögum af stað.
„Þetta er eins og með annað. Fólk lýgur meira en það mígur stundum.”