Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson mætti í morgunþáttinn Ísland vaknar á K100 í morgun þar sem hann ræddi meðal annars nýjustu stórmyndina sína, Masters of the Universe eða Hetjur himingeimsins eins og hún kallast á íslensku.
Myndin verður frumsýnd hér á landi á miðvikudaginn í Smárabíói með sérstakri viðhafnarsýningu og Jóhannes verður sjálfur á staðnum ásamt öðrum Íslendingi í myndinni, Hafþóri Júlíusi Björnssyni.
„Ég ætla bókstaflega að vona að það verði sett einhver rauð motta þarna upp,“ sagði Jóhannes léttur í bragði í viðtalinu.
Fór átta sinnum í búningamátun
Jóhannes leikur karakterinn Fisto í myndinni, einn af litríkum og kraftmiklum karakterum úr He-Man heiminum sem margir muna eftir úr æsku.
Hann sagði ferlið við myndina hafa verið langt og ítarlegt. Fyrst hafi hann sent inn sjálfsprufu eins og svo oft áður og svo liðu vikur áður en fleiri beiðnir komu.
„Svo allt í einu bara: heyrðu, við viljum fá þig.“
Tökurnar hófust síðan í fyrra en áður hafði Jóhannes þurft að ferðast ítrekað til London í búningamátanir.
„Ég fór held ég átta sinnum til London í búningamátun af því að ég er í einhverri svona brynju sem var þrívíddarprentuð.“
Karakterinn Fisto er meðal annars þekktur fyrir risastóran hnefa og Jóhannes sagði að mikið hefði þurft að prófa og stilla búninginn svo allt virkaði rétt.
„Ég er að fá mína eigin dúkku“
Eitt af því sem vakti hvað mesta lukku í viðtalinu var þegar Jóhannes upplýsti að verið væri að gefa út alvöru leikfangadúkku af karakternum hans.
„Þeir þrívíddarskönnuðu andlitið á mér og mig langar að segja að þeir hafi líka skannað bísepsana,“ sagði hann hlæjandi.
„Ég er að fá mína á morgun.“
Þriggja barna faðir sem vaknar klukkan sjö
Þrátt fyrir Hollywood-ferilinn segir Jóhannes hversdagsleikann ekki vera langt undan. Hann er þriggja barna faðir með hund og vaknar snemma eins og flestir foreldrar.
„Ég er nú þriggja barna faðir og vakna klukkan sjö,“ sagði hann þegar þáttastjórnendur grínuðust með að „svona stjörnur“ væru ekki vanar að vakna fyrir níu.
Hann sagði einnig frá því að elsta barnið væri nú í sinni fyrstu utanlandsferð án foreldra og yngsta barnið í tjaldútilegu með skólanum.
Stefnir á 160 kíló í réttstöðulyftu
Jóhannes ræddi líka líkamsræktina sem hann hefur verið duglegur við síðustu ár og sagði markmiðið nú vera að ná 160 kílóum í réttstöðulyftu.
„Réttstöðulyftan er móðir allra æfinga,“ sagði hann ákveðinn.
Þrátt fyrir stórmyndir og ferðalög segist hann þó ekki vera með eigin rækt í trailer heldur mæti bara í World Class eins og aðrir.
He-Man hafði sterkari kvenpersónur en margt annað á sínum tíma
Í viðtalinu rifjaði Jóhannes einnig upp hversu stór hluti He-Man-heimsins var af æsku margra á níunda áratugnum.
Hann sagði þó að serían hefði verið á undan sinni samtíð þegar kom að sterkum kvenpersónum.
„Í He-Man voru þær alveg jafn miklar hetjur og strákarnir,“ sagði hann og nefndi meðal annars Teelu og She-Ra.
Að hans sögn endurspeglast það einnig í nýju myndinni þar sem Teela sé eitt af aðalhlutverkunum ásamt He-Man sjálfum.
Gaman að vera kominn heim
Jóhannes sagði gaman að vera kominn til Íslands vegna frumsýningarinnar og viðurkenndi að eitt af því besta við öll ferðalögin væri að hafa loksins náð gullkorti hjá Icelandair.
Hann hafði þó ákveðnar skoðanir á þjónustunni í Saga Class.
„Þeir eru búnir að taka tannstöngulinn úr matnum,“ sagði hann og hló.
Viðtalið í heild sinni má heyra Hér


