Skjálftahrina sem hófst á sunnudag vestur af Húsmúla í Henglinum stendur enn yfir.
Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hún hafi verið í hæglátari kantinum í dag og viðbúið sé að eftirskjálftavirkni haldi áfram næstu daga.
„Það er að tikka inn áfram einn og einn skjálfti. Við höfum ekki fengið skjálfta nema bara rétt rúmlega tvo að stærð síðan seinnipartinn í gær en það getur tekið sig upp aftur,“ segir Jóhanna Malen.
Hrinan hófst á sunnudagsmorgun og hafa 1300 skjálftar riðið yfir, sá stærsti í gær. Engir skjálftar í stærri kantinum hafa mælst í dag. Seinnipartinn í gær mældust tveir skjálftar – 3,8 og 3,4 – en síðan þá hafa engir skjálftar yfir 2,2 mælst.
Jóhanna Malen segir að enn geti riðið yfir stærri skjálftar en þykir ólíklegt að þeir verði jafn stórir og í gær.
„Það getur verið að fólk finni fyrir einhverjum þrýstingi í nærliggjandi byggðum á næstu dögum svo er kannski lítið hægt að segja meira um framhaldið.“
Hún undirstrikar að engin merki séu um að jarðhræringarnar tengist kviku.