Væntingavísitala Gallup er núna á svipuðum stað og þegar svartsýni landsmanna var hvað mest í kórónuveirufaraldrinum og mikill meirihluti stjórnenda telur horfurnar í hagkerfinu slæmar.
Þeir sérfræðingar sem Morgunblaðið ræddi við benda á að öll þessi bölsýni sé ekki í takt við stöðuna í hagkerfinu. Útflutningsgreinarnar standa vel að vígi, kaupmáttur er á uppleið og fátt sem bendir til þess að meiri háttar skakkaföll séu í uppsiglingu.
Svo virðist sem neikvæðnin skýrist aðallega af vonbrigðum með hátt verðbólgu- og vaxtastig auk þess að fréttir af auknu atvinnuleysi og hópuppsögnum gera fólk órólegt.
Heilt á litið standa heimilin samt vel að vígi og er ekki annað að sjá en að fyrirtækjunum gangi ágætlega að þrauka þrátt fyrir háan vaxta- og launakostnað.
Óvissa ríkir um hvort kjarasamningum verði slitið í haust og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB veldur titringi en það hjálpar hagkerfinu að verð á fiski og áli er mjög hátt, gagnaverin mala gull, útlit er fyrir ágætis loðnuvertíð og von á fjölda ferðamanna með beinu flugi Air China.
Mínusar og plúsar
- Atvinnuleysi fikrast upp á við og vextir eru háir.
- Fiskverð er hátt og verð á áli hefur einnig rokið upp.
- ESB- og kjarasamningamálin valda aukinni óvissu.
Nánar má lesa um málið á bls.12 í Morgunblaðinu í dag