Draumurinn um sveitina við borgina - MBL.IS

Draumurinn um sveitina við borgina - MBL.IS

Draumurinn um sveitina við borgina - MBL.IS

„Við köllum þetta stærsta leyndarmál stórhöfuðborgarsvæðisins,“ segir Haraldur Ólafsson pípulagningameistari þegar hann lýsir Tjarnabyggð, nýju hverfi í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá Selfossi. Þar standa bræðurnir Haraldur og Benedikt Ólafssynir, í gegnum fjölskyldufyrirtækið Landheima, að uppbyggingu nýs áfanga undir merkjum Landheima þar sem markmiðið er að skapa skipulagða og vandaða byggð í sveitinni, án þess að fórna nálægð við þjónustu og mannlíf.

„Þetta er eiginlega draumurinn hjá mörgum,“ segir Haraldur. „Að búa í friði og ró, hafa mikið pláss í kringum sig og vera samt bara fimm mínútur frá Bónus.“

Það er stór sólpallur með dásamlegu útsýni frá Norðurslóð 6 …
Það er stór sólpallur með dásamlegu útsýni frá Norðurslóð 6 en þar er fullfrágengið sýningarhús. Ljósmynd/Aðsend

Tjarnabyggð er staðsett skammt frá Selfossi og er hluti af stærra skipulögðu svæði þar sem þegar hafa verið byggðir þrír áfangar. Landheimar standa nú að fjórða áfanganum sem verður alls 66 lóðir. Hver lóð er að minnsta kosti einn hektari en þær stærstu fara upp í þrjá hektara.

„Þetta eru allt eignarlóðir þannig að það er engin lóðarleiga og engin gatnagerðargjöld,“ útskýrir Haraldur. „Fólk fær líka mjög miklar byggingarheimildir. Í deiliskipulagi segir að það megi byggja eitt íbúðarhús ásamt útihúsum á hverri lóð og má heildarbyggingarmagn á hverri lóð vera allt að 1.500 fermetrar.“

Bræðurnir Haraldur og Benedikt Ólafssynir standa að uppbyggingu í Tjarnabyggð …
Bræðurnir Haraldur og Benedikt Ólafssynir standa að uppbyggingu í Tjarnabyggð þar sem markmiðið er að skapa skipulagða og vandaða byggð í sveitinni án þess að fórna nálægð við þjónustu og mannlíf. Ljósmynd/Aðsend

Pláss fyrir bæði fjölskyldulíf og áhugamál

Auk íbúðarhúsa er gert ráð fyrir fjölbreyttri nýtingu á lóðunum. Þar má meðal annars byggja hesthús, verkstæði, vélaskemmu eða önnur útihús. „Ef þú ert til dæmis iðnaðarmaður og vantar verkstæði fyrir reksturinn þinn þá geturðu haft það á lóðinni,“ segir Benedikt, sem er smiður og að ljúka húsasmíðameistaranámi. „Eða verið með dýrahald, hesta eða bara gæludýr. Þetta er svona blanda af sveitalífi og nútímaþægindum.“

Bræðurnir segja að sífellt fleiri sæki í slíkan lífsstíl, sérstaklega eftir mikla þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu. „Ég held að fólk sé orðið þreytt á umferðinni og því að vera alltaf ofan í næsta manni,“ segir Benedikt. „Fólk vill komast í meira næði og hafa meira svigrúm.“

Haraldur býr sjálfur í Tjarnabyggð ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum og hann segir fjölskylduna hafa orðið ástfangna af svæðinu um leið.

„Við erum bæði fædd og uppalin í Reykjavík en okkur leið strax vel þarna. Þetta er eins og að vera alltaf aðeins í sveitinni þó að þú sért samt rétt hjá allri þjónustu.“

Það þarf ekki myndir á veggina í húsunum í Tjarnabyggð.
Það þarf ekki myndir á veggina í húsunum í Tjarnabyggð. Ljósmynd/Aðsend

Fjallahringurinn verður málverkið

Mikil áhersla er lögð á hönnun húsanna og heildarsvip hverfisins. Landheimar vinna með Ask arkitektum að þróun húsanna og stefna að því að byggðin verði bæði samræmd og glæsileg.

„Við viljum að þetta verði fallegt og skipulagt hverfi,“ segir Haraldur. „Á hverju hringtorgi verða sambærileg hús þannig að þetta verði ekki einhver tilviljanakennd blanda af alls konar stílum. Við hugsum þetta svolítið sem lúxusbyggð.“

Fyrsta húsið er þegar risið og hefur vakið athygli fyrir nútímalega hönnun og stórbrotna staðsetningu. Húsið stendur við Norðurslóð 6 og þjónar sem sýningarhús. Þar hefur lóð verið fullfrágengin og stór sólpallur byggður til að sýna hvernig sameina má nútímaþægindi og rólegt umhverfi í sveitinni rétt við Selfoss.

Um er að ræða glæsilegt einingahús frá Einingum ehf. þar sem lögð hefur verið áhersla á gæði, birtu og tengingu við náttúruna. Stórir gólfsíðir gluggar, opin rými og vel útfært skipulag gefa húsinu sérstaka stemningu.

Laugardaginn 30. maí á milli klukkan 14 og 15 er …
Laugardaginn 30. maí á milli klukkan 14 og 15 er opið hús að Norðurslóð 6 í Tjarnabyggð við Selfoss. Ljósmynd/Aðsend

Þetta hús er nú til sölu og á laugardaginn 30. maí milli kl. 14 og 15 verður haldið opið hús fyrir áhugasama kaupendur sem vilja upplifa eignina og svæðið á eigin skinni. „Þetta eru viðhaldslítil og mjög vönduð einingahús sem eru klædd með áli,“ segir Benedikt. „Við höfum lagt mikið upp úr gæðum, bæði í burðarvirki, gluggum og hurðum. Gæðin standast að fullu íslenskar kröfur.“

Húsið er með gólfsíðum gluggum allan hringinn og tæplega 200 fermetra sólpalli sem opnar húsið út í náttúruna.

„Þú þarft eiginlega engin málverk inni í þessu húsi,“ segir Benedikt og hlær. „Það er bara fjallahringurinn sem fegrar veggina. Skipulag húsanna er einstaklega vel heppnað. Það er mjög rúmgóð stofa með mikilli lofthæð og svo sérstök svefnálma þar sem öll herbergin eru saman. Það fer rosalega vel um mann þarna.“

Í Tjarnabyggð eru viðhaldslítil og mjög vönduð einingahús sem eru …
Í Tjarnabyggð eru viðhaldslítil og mjög vönduð einingahús sem eru klædd með áli. Það er mikið lagt upp úr gæðum, bæði í burðarvirki, gluggum og hurðum. Ljósmynd/Aðsend

Níu mánuðir frá pöntun til afhendingar

Landheimar bjóða bæði fullkláruð hús og hús á mismunandi byggingarstigum eftir óskum kaupenda. „Ef einhver pantar hús hjá okkur í dag þá gæti það verið tilbúið eftir níu mánuði,“ segir Haraldur. „Þá færðu bara afhenta lykla og getur flutt inn með ferðatöskuna.“

Næsta verkefni er minna hús, um 170 fermetrar, en bræðurnir segja þó að fjölbreyttar stærðir verði í boði. Húsin eru þó öll skipulögð á svipaðan hátt.

Hver lóð í Tjarnabyggð er að minnsta kosti einn hektari …
Hver lóð í Tjarnabyggð er að minnsta kosti einn hektari en þær stærstu eru þrjár hektarar. Ljósmynd/Aðsend

Fjölskylduvænt samfélag

Þrátt fyrir að byggðin sé umlukin náttúru er þjónustan aldrei langt undan. Árborg sér um skólaakstur, sorphirðu og snjómokstur og frá Tjarnabyggð liggur upplýstur hjóla- og göngustígur alla leið niður á Selfoss.

„Krakkarnir hjóla oft bara niður á Selfoss,“ segir Haraldur. „Elsti strákurinn minn fer meira að segja stundum bara á vespu.“

Á svæðinu eru einnig upplýstir reiðstígar sem gera hestamönnum kleift að ríða um hverfið árið um kring.

„Þetta er algjör draumastaður fyrir börn,“ segir Benedikt. „Það myndast svo skemmtilegt samfélag þegar krakkarnir eru að leika sér saman og nágrannar verða nánir.“

Selfoss er einungis í fimm mínútna fjarlægð frá Tjarnabyggð og …
Selfoss er einungis í fimm mínútna fjarlægð frá Tjarnabyggð og þaðan liggur upplýstur hjóla- og göngustígur á Selfoss. Ljósmynd/Aðsend

Byggja heilt hverfi saman

Á bak við verkefnið stendur öll fjölskyldan. Haraldur sér um pípulagnir, Benedikt smíðarnar og faðir þeirra, sem er lögfræðingur, hefur stýrt verkefninu með þeim.

„Við höfum séð um framkvæmdina og uppbyggingu verkefnisins frá upphafi,“ segir Benedikt. „Það hefur verið rosalega gaman að vinna saman að svona verkefni og fylgja því eftir frá skipulagi, hönnun og yfir í það að sjá hverfið taka á sig mynd.“

Haraldur tekur undir það.

„Þetta eru algjör forréttindi. Við njótum þess að vera saman og það er ótrúleg tilfinning að sjá þetta fara úr túni yfir í heilt hverfi.“

Bræðurnir segja að fyrsta húsið hafi gefið þeim enn meiri trú á verkefninu.

„Þegar maður sér húsið standa þarna og ímyndar sér hvernig þetta verður þegar fleiri hús rísa þá fær maður svona extra kraft til að gera þetta vel,“ segir Benedikt.

Haraldur brosir þegar hann lýsir framtíðarsýninni.

„Við viljum að þetta verði stolt Árborgar. Falleg og skipulögð byggð þar sem fólk fær að upplifa það besta úr tveimur heimum: sveitina og borgina.“



Upprunaleg slóð:
https://www.mbl.is/frettir/kynning/2026/05/27/draumurinn_um_sveitina_vid_borgina/

📰 Aðrar fréttir

Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 2
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 2
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 2
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 2
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 2
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 2
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
📅 14.10.2026 👁️ 4
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
Confirming the review, the government said it was "vital to ensure travel remains accessible and that passengers are treated fairly".
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að eftir smá grennslan hafi komið í ljós að meintir þjófar höfðu brotist inn, s...
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira í september en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Hún mældist 3,7%, sem er örlítið meira en þau 3,6% sem spáð ha...
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
📅 14.10.2026 👁️ 4
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
The Ukrainian president visited London in an effort to bolster support among European allies following a row with Donald Trump.