Gerður hefur birt nokkrar brúðkaupsmyndir frá Garda-vatni á samfélagsmiðlunum sínum.
Á myndunum má sjá hjónin njóta lífsins við sjálft Garda-vatnið, við glæsilega villu og á vínekru.
„Hlakka til að deila meira með ykkur við tækifæri, en núna ætlum við að halda áfram að njóta á Ítalíu,“ skrifar hún á Instagram.
Í Instagram-hringrás sinni greinir Gerður frá því að til þess að ná fallegri mynd af henni og Jakobi að kyssast í fallegum ítölskum bæ hafi umferð vegfarenda verið stöðvuð í smá stund.
„Það var ákveðin upplifun að labba um bæinn í brúðarkjól með 4 einstaklinga að mynda og aðstoða,“ skrifar Gerður.