„Útkoman kom okkur á óvart. Þarna er mildur og skemmtilegur keimur, mýkri og mildari en við erum vön,“ segir Haraldur Þorkelsson, framkvæmdastjóri Eimverks Distillery.
Á föstudag var þremur tunnum af Flóka viskíi tappað á flöskur. Það væri sjálfsagt ekki í frásögur færandi nema að umrætt viskí hefur fengið að þroskast við afar sérstakar aðstæður síðustu fimm árin. Viskítunnunum var komið fyrir í manngerðu hellunum við Hellu en geymsluaðstæðum þar er lýst sem einstökum á heimsvísu; þar sé náttúrulegur stöðugleiki í hita- og rakastigi árið um kring.
Haraldur segir í samtali við Morgunblaðið að þetta verkefni hafi passað vel við starfsemi Eimverks, fyrirtækið hafi framleitt viskí í næstum 16 ár og hluti af því ferli sé að vinna með öldrun í íslenskum aðstæðum og umhverfi. Gaman hafi verið að samstarfinu enda séu hellarnir á Hellu stórmerkilegir. Samstarfið nær reyndar lengra en bara til tunnuþroskunarinnar því gestum í hellunum hefur staðið til boða að smakka Flóka viskí undanfarin ár.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
