Það gengur einnig mikið á í umræðum um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB. Við verðum í beinni frá þinginu og ræðum við þingmenn sem hafa tekist á í pontu í dag.
Hefð er fyrir því að forsetar Alþingis séu gerðir ódauðlegir með málverki. Við skoðum eitt slíkt sem var afhjúpað í gær og ræðum við viðfangsefnið sem sat fyrir í margar klukkustundir.
Þá skoðar Kristján Már flughermi Icelandair og í Sportinu heyrum við í landsliðsmanni sem er að flytja til Íslendinganýlendunnar Tenerife.
Í Íslandi í dag hittum við fjölskyldu ungrar konu sem lést nýverið eftir bakslag í kjölfar erfiðra áfalla. Þau segja ungan son hennar ljós í myrkrinu.
Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18:30