Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að engin hætta hafi verið á ferðum en að draga hafi þurft bátinn til hafnar.
Fram kom fyrr í dag að eldur kviknaði í vélarrúmi fiskibáts sem staddur var á Breiðafirði um hádegisbil. Einn maður var um borð í bátnum. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út.