„Danmörk teymir Ísland eptir sér í bandi“ – Jón forseti 1848

Hallur Hallsson skrifar:
„Danmörk teymir Ísland eptir sér í bandi og skammtar því réttindi, frelsi og menntun eptir því sem henni [Danmörku] þykir hagkvæmast og bezt við að eiga," skrifaði Jón Sigurðsson [1811-1879] í hugvekju til Íslendinga áríð 1848. Einveldi konungs hafði verið aflagt í Danmörku. Jón forseti var harðorður í garð embættismanna: „Þjóðin er ekki til handa embættismönnum sínum, heldur eru þeir handa henni; hún á því með að krefja þá reikningskapar fyrir stjórn þeirra, og þeir eiga að svara; en hér verður þjóðin öldungis þýðíngarlaus, nema ef það gæti verið embættismönnum til æfingar, að stjórna viljalausum skepnum, og sýna þeim hversu miklir þeir væru.“
Þjóðfundi hvorki skipað fyrir né drottnað yfir
Á Þjóðfundinum 1851 stóð til að Alþingi yrði amtráð í dönsku ríki undir einveldi embættismanna með sex íslenska þingmenn á dönsku þjóðþingi. Trampe greifi lagði fram frumvarp um innlimun Íslands líkt og hvert annað hérað í Danmörku. Þingheimur mótmælti. Þingmenn neituðu að verða hluti danska konungsríkisins og svöruðu kalli Jóns forseta. Trampe greifi sleit fundi með þjósti. Þingmenn voru ekki „viljalausar skepnur“. Þjóðfundi var hvorki skipað fyrir né drottnað yfir. Með greifanum stóðu sex konungsfulltrúar sem mynduðu 5tu herdeild sinnar tíðar gegn þjóð sinni. Jón forseti mótmælti og þingheimur nánast einum rómi tók undir: „Vér mótmælum allir." Á ytri höfninni lá danskt herskip. Hótun um valdbeitingu lá í loftinu.
Einveldi okkar tíðar og Alþingi Íslendinga 2026
„Sagan fer ekki í hringi en rímar oft,“ sagði Mark Twain [1835-1910]. Árið er 2026, 175 árum frá Þjóðfundi. Þann 19. júní síðastliðinn var Alþingi Íslendinga slitið af þeim sem freista að esba þjóðina til þess að kíkja í pakka frá Brüssel. Laxinn skal þreyta. Mikill meirihluti þingmanna á Alþingi Íslendinga er andvígur innlimun í einveldi embættismanna í Brüssel. Fjöldi þingmanna greiddi atkvæði gegn eigin samvisku og sveik drengskapareið að Stjórnarskrá lýðveldisins. „Mér er ekki sama um lýðveldið,“ sagði Ólafur Ragnar í sjálfstæðishúsinu. Ursula der Leyen okkar tíðar er Trampe fortíðar. Ríkisstjórn Íslands eru konungkjörnir þjóðarfundarmenn fortíðar. Fyrir dyrum er að Ísland verði evrópskt hérað undir einveldi embættismanna. Nú eru herskarar embættismanna í Brüssel. Þar véla fjörtíu þúsund embættismenn um örlög þjóða; 40 þúsund skriffinnar á skattlausum ofurlaunum og þrjátíu þúsund hagsmunagæslumenn helstu hagsmunaaðila veraldar. Ísland vegur 0.09% innan um þennan herskara.
Jón forseti hefði getað skrifað: „Esb teymir Evrópu eptir sér í bandi og skammtar réttindi ..."