Mynd sem byggð er á opinberum afbrotagögnum frá Danmörku hefur farið víða á samfélagsmiðlum undanfarna daga og vakið mikla umræðu um tengsl þjóðernis og afbrota í landinu.
Á myndinni er borin saman tíðni sakfellinga eftir þjóðerni í Danmörku miðað við Dani sjálfa, sem eru skilgreindir sem „1x“. Þar eru sýndir þeir hópar sem brjóta mest af sér í hverjum flokki á árunum 2008-2024.
Myndin sjálf er ekki opinber útgáfa frá dönskum stjórnvöldum heldur samantekt Jonathan Pallesen, sem er doktor í statistical genetics, en hann byggir samantektina á gögnum úr dönsku gagnagrunnunum STRAFNA4 og FOLK1C hjá Statistics Denmark, hagstofu Danmerkur.
Danmörk er eitt fárra Evrópuríkja sem heldur opinberlega utan um afbrotatölfræði eftir upprunalandi og þjóðerni, sem gerir slíkan samanburð mögulegan.

Sómalir efstir í mörgum alvarlegum brotaflokkum
Samkvæmt myndinni eru einstaklingar af sómölskum uppruna með hæstu tíðni sakfellinga í fjölmörgum alvarlegum brotaflokkum.
Þar kemur meðal annars fram að Sómalir séu:
33 sinnum líklegri til að vera sakfelldir fyrir rán en Danir
27 sinnum líklegri til að vera sakfelldir fyrir tilraun til manndráps
20 sinnum líklegri til að vera sakfelldir fyrir nauðgun
17 sinnum líklegri til að vera sakfelldir fyrir alvarlegar líkamsárásir
14 sinnum líklegri til að vera sakfelldir fyrir fjárkúgun
13 sinnum líklegri til að vera sakfelldir fyrir skjalafals
Þá leiða Palestínumenn nokkra aðra brotaflokka samkvæmt myndinni.
Samkvæmt tölunum eru Palestínumenn:
27 sinnum líklegri til að vera sakfelldir fyrir fjárkúgun
20 sinnum líklegri til að vera sakfelldir fyrir tilraun til manndráps
16 sinnum líklegri til að vera sakfelldir fyrir rán
12 sinnum líklegri til að vera sakfelldir fyrir nauðgun
10 sinnum líklegri til að vera sakfelldir fyrir innbrot
Túnisbúar eru einnig mjög hátt skráðir í nokkrum flokkum, sérstaklega í ránum, líkamsárásum og búðarþjófnaði.
Byggt á opinberum gagnagrunnum
Efst á myndinni kemur fram að stuðst sé við gagnatöflurnar STRAFNA4 og FOLK1C frá Statistics Denmark. STRAFNA4 inniheldur upplýsingar um einstaklinga sem hafa verið sakfelldir eftir tegund brota og upprunalandi, á meðan FOLK1C inniheldur lýðfræðilegar upplýsingar.
Samkvæmt merkingum myndarinnar er um að ræða samanburð á tíðni sakfellinga miðað við Dani á aldrinum 15-79 ára.
Taka skal fram að um er að ræða hlutfallslega tíðni afbrota eftir þjóðerni en ekki heildarfjölda, en innfæddir Danir leiða enn heildarfjölda afbrota í landinu.