21 árs gamall maður hefur verið dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleika bandarísku söngkonunnar Taylor Swift í Vín í ágúst 2024.
Maðurinn, sem í austurrískum fjölmiðlum er aðeins nefndur Beran A samkvæmt persónuverndarlögum þar í landi, var einnig fundinn sekur um fjölda annarra hryðjuverkatengdra brota. Saksóknarar sögðu hann hafa svarið hollustu við hryðjuverkasamtök tengd Íslamska ríkinu.
Handtaka mannsins átti sér stað eftir ábendingu frá bandarísku leyniþjónustunni CIA, skömmu áður en fyrstu af þremur uppseldum Eras-tónleikum Taylor Swift á Ernst Happel-leikvanginum í Vín áttu að fara fram í ágúst 2024.
Í kjölfarið voru allir þrír tónleikarnir felldir niður, sem olli miklum vonbrigðum meðal tæplega 200 þúsund aðdáenda sem höfðu ætlað að sækja tónleikana.
Við réttarhöldin játaði Beran A að hafa skipulagt árásina og að hafa verið hluti af hryðjuverkasamtökum. Hann játaði ekki að hafa verið meðsekur við tilraun til manndráps.
Saksóknarar sögðu lögreglu hafa fundið nær tilbúna sprengju við húsleit á heimili hans. Þá hafi hann reynt að útvega sér ólögleg vopn, meðal annars vélbyssu og handsprengju, án árangurs.
Annar 21 árs gamall maður sem tók þátt í árásaráætluninni, Arda K, hlaut 12 ára fangelsisdóm. Mennirnir voru ásakaðir, ásamt þriðja manninum Hasan E., um að hafa stofnað hættulegan hryðjuverkahóp og skipulagt árásir í fleiri borgum, þar á meðal í Mekka, Istanbúl og Dúbaí.
Hasan E. situr nú í fangelsi í Sádi-Arabíu, sakaður um að hafa stungið fimm manns í Mekka árið 2024.
Taylor Swift hefur áður lýst yfir að hún hafi orðið skelfingu lostin þegar hún frétti af hryðjuverkaógninni og kveðst haldin samviskubiti gagnvart öllu því fólki sem keypti miða á tónleikana. Hún hafi þó verið þakklát stjórnvöldum fyrir inngripið, enda sé skárra að syrgja tónleika en fjölda mannslífa.
Geðlæknir sem bar vitni fyrir dómi sagði engin merki hafa verið um geðsjúkdóma hjá Beran A og að engin geðræn skýring væri á öfgahyggju hans.