Það er fullkomlega eðlilegt að endurskoða forsendur samgöngusáttmála að sögn Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni og verðandi borgarstjóri, greindi frá því í kvöldfréttum Sýnar á miðvikudag að hún hefði átt samtal við Daða Má símleiðis um samgöngusáttmálann.
Engir formlegir fundir hafa átt sér stað
„Við höfum ekki átt neina formlega fundi enn þá en ég hlakka til að hitta nýjan borgarstjóra og ég óska henni til hamingju,“ segir Daði í samtali við blaðamann mbl.is.
„Þetta er samningur sem á sér langa sögu og er gerður af fyrri ríkisstjórn við fyrri sveitarstjórnir. Það er fullkomlega eðlilegt að við setjumst niður aftur og skoðum forsendurnar.“
Margar breytingar orðið frá undirritun
Hann segir margar breytingar hafa orðið síðan sáttmálinn var undirritaður og nefnir þar breytingar á grunnforsendum samningsins sem og nýtt innviðafélag sem ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á að stofna.
„Ég tel að það sé full ástæða til að yfirfara forsendurnar en það sem má ekki gerast er að þetta samtal leiði til tafa á framkvæmdum vegna þess að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa beðið of lengi og þörfin fyrir umbætur á höfuðborgarsvæðinu er rosalega brýn,“ segir Daði.
