Hjónin greindu frá óléttunni í myndbandsfærslu á Instagram. Þar sýnir Árný óléttukúlun og Daði syngur lagið sitt Think About Things sem vann Söngvakeppnina árið 2020 og spilar á gítar.
Stóð til að lagið yrði framlag Íslands í Eurovision sama ár en keppninni var aflýst, eins og lesendur muna eflaust vel eftir. Lagið og hljómsveitin Daði og Gagnamagnið vakti mikla lukku meðal Eurovision-aðdáenda og var jafnvel spáð sigri í keppninni.
Daði og Árný fluttu á síðasta ári heim til Íslands eftir tíu ára búsetu í Berlín og festu kaup á einbýlishúsi í Hveragerði.
Árný opnaði sig um dulið fósturlát sem þau hjónin gengu í gegnum á síðasta ári og deildi reynslunni „fyrir þá sem hafa lent í svipuðu eða munu kannski gera það og fræða þá sem vilja hlusta,“ sagði hún í Instagram-færslu.