Býr sig undir það versta en vonar það besta - Vísir

Býr sig undir það versta en vonar það besta - Vísir

Býr sig undir það versta en vonar það besta - Vísir

Bændur á Norðurlandi og Austurlandi hafa þurft að þola slæmt óveður í byrjun júní síðastliðin tvö ár. Þuríður Lillý Sigurðardóttir er sauðfjárbóndi á Sléttu á Reyðarfirði. Hún hefur gripið til ráðstafana vegna veðursins á morgun og hefði alla jafna verið búin að hleypa meira fé út.

„Manni finnst frekar ótrúlegt að hugsa til þess, af því að núna er 15 stiga hiti og sól og logn. Það er bara Spánarveður,“ segir hún í samtali við fréttastofu.

Eyjólfur Ingvi Bjarnason er formaður deildar sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands og rekur búið Ásgarð nærri Búðardal. Hann segir lömb víða komin út þar sem ekki er húspláss fyrir allt féð á mörgum bæjum. Bændur hafi þá gripið til þess ráðs að búa til skjól fyrir þau. Veðurspáin sé mögulega vægari en hún leit út í byrjun en bleytan, slyddan og lágt hitastig geti verið slæm fyrir lambfé.

Eyjólfur bætti við að sauðburður standi nú víða sem hæst og bændur verði á tánum. Margir séu búnir að koma sér upp góðu skjóli eftir óveðrið síðustu tvö ár.

Veltur á úrkomunni

Þuríður á ekki von á aftakaveðri á Reyðarfirði í þessari vindátt.

„Ég er að vona að við sleppum ágætlega frá þessu en maður samt býr sig undir þetta.“ Þuríður reiknar með því að sleppa við slydduna en það velti þó allt á því hversu mikil úrkoman verður og hversu lengi veðrið standi yfir.

„Maður býr sig undir það versta en vonar það besta.“ Hluti af því sé að tryggja að lömbin hafi nægt fóður og skjól.

Þuríður situr einnig í bæjarstjórn Fjarðabyggðar.aðsend

Komin með átta hundruð lömb

Þuríður er enn með öll yngri lömbin innandyra og þau elstu sem eru úti geta gengið inn í skjól ef á þarf að halda. Þá segist hún hafa sett út nóg af fóðri til að tryggja að þau hafi öll greiðan aðgang að því uppi við húsin og skjólið.

„Ég geymdi það að setja á fjall, það er allt ennþá annað hvort inni heima eða við skjól. Að öllu jöfnu þá værum við búin að setja miklu miklu meira út ef þessi veðurspá hefði ekki verið yfirvofandi.“

Sauðburður sé að klárast og aðeins nítján ær eftir en Þuríður er með 500 fullorðnar á bænum: „Við erum komin með um 800 lömb.“

Vonar að veðrið verði ekki jafn slæmt og 2024

Þuríður og maðurinn hennar fundu vel fyrir óveðrinu síðustu tvö ár.

„Sérstaklega árið þar á undan. Það var verra og við lentum alveg í því. Bæði hýstum við fé og það er mjög erfitt að hýsa fé sem er búið að vera úti. Þá hanga þær á móður sinni og þær fá spenasæri og fóru bara mjög illa, aðallega ærnar.

Lömbin eru harðari af sér, þetta fór verst í ærnar hjá okkur. Svo eru líka tún og annað sem geta kalið. Við urðum ekki fyrir miklu tjóni, við misstum einhverjar þrjár ær sem voru samt við skjól og allt svoleiðis, veðrið var bara þannig. Við höfum sloppið vel miðað við marga.“

Um 800 lömb hafa komið í sauðburði þetta árið. aðsend

Ekki er gert ráð fyrir að veðrið verði jafn slæmt á morgun.

„Það er útlit fyrir að þetta verði betra núna og náttúrulega er allur gróður kominn mjög vel af stað þannig að maður er að vona að þetta verði bara smá rigning og búið, rigni ofan í áburðinn. Það væri svona besta niðurstaðan.“

Hún vonar að hægt verði að halda áfram með vorverkin og að það verði sem minnst úr veðrinu næstu tvo daga.

„Bændur eru náttúrulega farnir að bera á og plægja tún og annað. Maður er alveg kominn í vorgírinn í þessum sumarham sem er núna. Þannig að það er bara vonandi verður þetta sem minnst alls staðar.“

Fréttin hefur verið uppfærð. 

#býr #sig #undir #versta #það


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262889461d/byr-sig-undir-thad-versta-en-vonar-thad-besta

📰 Aðrar fréttir

Rússar ætla að hefna fyrir árásina: ESB/NATO lönd gætu orðið næsta skotmark
📅 27.05.2026 👁️ 0
Rússar ætla að hefna fyrir árásina: ESB/NATO lönd gætu orðið næsta skotmark
Rússar ætla að hefna fyrir árásina: ESB/NATO lönd gætu orðið næsta skotmark Fréttin27. maí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Rússneskir sérfræ...
Segir mikilvægt að sinna forvörnum gegn smitum á bráðamóttöku
📅 27.05.2026 👁️ 0
Segir mikilvægt að sinna forvörnum gegn smitum á bráðamóttöku
Að minnsta kosti tíu starfsmenn bráðamóttöku Landspítala hafa verið útsettir fyrir berklasmiti undanfarnar vikur.Starfsfólk hefur gagnrýnt sýkingavarn...
Boða rót­tækar breytingar: Ari í­hugar til­boð sem Líf vildi fá - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 0
Boða rót­tækar breytingar: Ari í­hugar til­boð sem Líf vildi fá - Vísir
Fram kom á blaðamannafundi nýs meirihluta í Viðey í morgun að nú eigi að láta verkin tala. Til að mynda á að lækka fasteignaskatta, auglýsa á eftir vi...
Matthew Perry's assistant sentenced to 41 months for role in the actor's death
📅 27.05.2026 👁️ 0
Matthew Perry's assistant sentenced to 41 months for role in the actor's death
​​The live-in personal assistant to Friends star Matthew Perry has been sentenced to 41 months in prison, capping a multi-year legal saga surrounding ...
Hjónasjálfa, gleði og faðm­lög í Við­ey - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 0
Hjónasjálfa, gleði og faðm­lög í Við­ey - Vísir
Úti í Viðey kynntu oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins í Reykjavík svo nýtt meirihlutasamstarf sitt og tilkynntu að Hildu...
Fjölskylduerjur fyrir norðan fóru úr böndunum – Sakfelldur fyrir árás á dóttur sína sem sló hann fyrst - DV
📅 27.05.2026 👁️ 0
Fjölskylduerjur fyrir norðan fóru úr böndunum – Sakfelldur fyrir árás á dóttur sína sem sló hann fyrst - DV
Maður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra sakfelldur fyrir líkamsárás gegn dóttur sinni vegna atvika sem urðu þann 24. febrúar árið 2024. Í ákæru var ...
Bandaríkin segja fréttir um friðarsamkomulag uppspuna
📅 27.05.2026 👁️ 0
Bandaríkin segja fréttir um friðarsamkomulag uppspuna
Vonir glæddust í dag um friðarsamkomulag á milli Bandaríkjanna og Íran. Ríkisfjölmiðlar í Íran fullyrtu að þeir hefðu komist yfir samningsdrög á milli...
Nýr borgar­stjóri mætir í beina út­sendingu - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 0
Nýr borgar­stjóri mætir í beina út­sendingu - Vísir
Hildur mætir í myndver í kvöldfréttum Sýnar á slaginu 18:30 og ræðir viðræðurnar og áherslur nýs meirihluta.  Miðflokksmenn hafa skipst á að koma í po...
„Svik við kjósendur sem kusu breytingar“
📅 27.05.2026 👁️ 0
„Svik við kjósendur sem kusu breytingar“
Ekki eru allir á eitt sáttir með nýjan meirihluta í borgarstjórn, ef eitthvað er að marka samfélagsmiðla. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðfl...
Landsnet skákaði þremur landeigendum í Hæstarétti
📅 27.05.2026 👁️ 2
Landsnet skákaði þremur landeigendum í Hæstarétti
Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu landeigenda þriggja jarða í sveitarfélaginu Vogum um að ákvörðun um eignarnám á landi þeirra yrði felld úr gildi. Með ...
Nauðgaði sofandi konu í endaþarm - DV
📅 27.05.2026 👁️ 1
Nauðgaði sofandi konu í endaþarm - DV
Héraðssaksóknari hefur ákært mann í Reykjavík fyrir nauðgun en meint brot var framið á heimili mannsins árið 2023. Samkvæmt ákæru hafði maðurinn samræ...
„Mér finnst þetta skárri kosturinn“
📅 27.05.2026 👁️ 3
„Mér finnst þetta skárri kosturinn“
„Ég er ánægð að Miðflokkurinn var ekki með í þessum meirihluta en ég hef áhyggjur af hægri áherslum hérna í borginni. Ég hef lýst því áður að mér finn...
Lands­net lagði land­eig­endur í Hæsta­rétti - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 2
Lands­net lagði land­eig­endur í Hæsta­rétti - Vísir
Landsnet greinir frá þessu í tilkynningu en dómurinn var kveðinn upp í dag en hefur ekki verið birtur opinberlega. Rétturinn staðfestir þannig niðurst...
Donald Trump says US 'not satisfied' with Iran deal yet
📅 27.05.2026 👁️ 0
Donald Trump says US 'not satisfied' with Iran deal yet
US President Donald Trump has said he is "not satisfied" yet with the terms of the deal being negotiated with Iran.He said Tehran was "very much inten...
Stakk og beit eiginmanninn eftir að hann svæfði pylsuhundana – „Ég ætla að fokkings stinga þig aftur drullusokkurinn þinn“ - DV
📅 27.05.2026 👁️ 1
Stakk og beit eiginmanninn eftir að hann svæfði pylsuhundana – „Ég ætla að fokkings stinga þig aftur drullusokkurinn þinn“ - DV
Bresk kona á sjötugsaldri hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir að stinga eiginmann sinn með hnífi og bíta hann ítrekað. Var hún reið við hann...
Orri segist ekki hafa gert kröfu um bæjarstjórastólinn og upplýsir um næsta bæjarstóra - DV
📅 27.05.2026 👁️ 1
Orri segist ekki hafa gert kröfu um bæjarstjórastólinn og upplýsir um næsta bæjarstóra - DV
Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, segist ekki hafa gert kröfu um bæjarstjórastólinn í samstarfsviðræðum við Samfylkinguna og Við...
Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 1
Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku - Vísir
Sjömenningarnir sem festust í hellinum eru frá þorpi skammt frá hellinum í miðju landsins eða nánar tiltekið Xaysomboun-héraði. Þau héldu inn í hellin...
Israel strikes Tyre after ordering evacuation of south Lebanon city
📅 27.05.2026 👁️ 1
Israel strikes Tyre after ordering evacuation of south Lebanon city
The Israeli military has carried out air strikes on Hezbollah targets in Tyre in southern Lebanon, after ordering the evacuation of the entire city.Th...
Enn langt í land í viðræðum Icelandair og flugmanna
📅 27.05.2026 👁️ 0
Enn langt í land í viðræðum Icelandair og flugmanna
Ríkissáttasemjari segir enn langt í land í kjaraviðræðum Icelandair og flugmanna. Fundur fór fram í dag og hefur Ríkissáttasemjari beðið bæði flugmenn...
Watch: Moment rescuers find five men trapped in Laos cave
📅 27.05.2026 👁️ 2
Watch: Moment rescuers find five men trapped in Laos cave
Rescuers in Laos have found five villagers alive inside a flooded cave after they were trapped for a week.
Sigmundur segir sögulegu tækifæri kastað á glæ
📅 27.05.2026 👁️ 1
Sigmundur segir sögulegu tækifæri kastað á glæ
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir að sögulegu tækifæri hafi verið kastað á glæ þegar Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðis...
'It's not a nice world out there': Birth rates hit a 50-year low
📅 27.05.2026 👁️ 2
'It's not a nice world out there': Birth rates hit a 50-year low
"It's just not a very nice world to bring people into, and why would I consciously do that when I can choose not to?"Stacey Waring, 40, a nurse from N...
Fótbolti.net legið niðri í á annan sólar­hring - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 1
Fótbolti.net legið niðri í á annan sólar­hring - Vísir
„Það hrundi serverinn hjá okkur úti í Þýskalandi og það er verið að setja 24 ár af gagnamagni yfir á annan server og þetta hefur því miður tekið lengr...
Hallgrímur furðar sig á viðbrögðunum við ummælum hans um Davíð - „Offramboð var á lofi“ - DV
📅 27.05.2026 👁️ 1
Hallgrímur furðar sig á viðbrögðunum við ummælum hans um Davíð - „Offramboð var á lofi“ - DV
Hallgrímur Helgason rithöfundur furðar sig á viðbrögðum þeirra sem gagnrýna þátttöku hans og ummæli í nýlegum þætti RÚV um Davíð Oddsson. Það sé ekki ...
Orðið á götunni: Hægri miðjumeirihlutinn boðar gott fyrir samfélagið og borgarbúa - DV
📅 27.05.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Hægri miðjumeirihlutinn boðar gott fyrir samfélagið og borgarbúa - DV
Nú hefur Hildur Björnsdóttir, ásamt Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, og Einari Þorsteinssyni, oddvita Framsóknar, myndað nýjan meirihluta í Re...
Framsókn hefur lokið máli sínu
📅 27.05.2026 👁️ 1
Framsókn hefur lokið máli sínu
Framsóknarflokkurinn hefur lokið máli sínu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður...
World Cup 2026: Fifa summoned to explain ticket pricing
📅 27.05.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Fifa summoned to explain ticket pricing
Fifa must answer questions about 2026 World Cup ticket sales after the attorneys general of New York and New Jersey launch an investigation.
Hryllingur í Frakklandi: Tveir unglingar kyrktu 11 ára dreng fyrir að stela veiðibúnaði - DV
📅 27.05.2026 👁️ 0
Hryllingur í Frakklandi: Tveir unglingar kyrktu 11 ára dreng fyrir að stela veiðibúnaði - DV
Tveir franskir unglingar, 16 ára piltur og 15 ára stúlka, hafa verið ákærð fyrir manndráp í borginni Rennes í vesturhluta landsins. Þau kyrktu 11 ára ...
French Open 2026 results: Elena Rybakina knocked out by Yuliia Starodubtseva in biggest upset so far
📅 27.05.2026 👁️ 0
French Open 2026 results: Elena Rybakina knocked out by Yuliia Starodubtseva in biggest upset so far
World number two Elena Rybakina suffers a second-round defeat by Yuliia Starodubtseva in the biggest French Open upset so far.
Kora Maresía, a Great Investment Opportunity in a New Premium Resort Concept in Lanzarote
📅 27.05.2026 👁️ 2
Kora Maresía, a Great Investment Opportunity in a New Premium Resort Concept in Lanzarote
Holiday destinations are undergoing a transformation driven by the search for higher-quality, more sustainable experiences that are more deeply connec...
Ekkja Andemariams: „Hér í Svíþjóð hefur ekkert gerst í þessu máli, ég hef engar bætur fengið“
📅 27.05.2026 👁️ 2
Ekkja Andemariams: „Hér í Svíþjóð hefur ekkert gerst í þessu máli, ég hef engar bætur fengið“
Mehrawit Tesfaslase, eftirlifandi eiginkona fyrsta plastbarkaþegans Andemariams Beyene, segist ekki hafa fengið neina afsökunarbeiðni eða skaðabætur f...
Almost 500,000 Russian soldiers killed since start of Ukraine war
📅 27.05.2026 👁️ 2
Almost 500,000 Russian soldiers killed since start of Ukraine war
Almost 500,000 Russian soldiers have been killed since it launched its fullscale invasion of Ukraine in 2022, according to the UK's largest spy agency...
Meðlimur Baader-Meinhof gengisins dæmd í fangelsi eftir 30 ár á flótta - DV
📅 27.05.2026 👁️ 2
Meðlimur Baader-Meinhof gengisins dæmd í fangelsi eftir 30 ár á flótta - DV
Daniela Klette, meðlimur Baader-Meinhof gengisins, hefur verið dæmd í 13 ára fangelsi. Klette var á flótta í um 30 ár. Breska ríkissjónvarpið BBC grei...
Sér mest eftir full­yrðingum sínum um ein­hverfu - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 2
Sér mest eftir full­yrðingum sínum um ein­hverfu - Vísir
Árið 2022 komu út tveir þættir af fréttaskýringaþættinum Kompási um trúarlegt ofbeldi og ofbeldi í andlega heiminum. Í fyrri þættinum var rætt við fól...
Kveður með hamingjuóskum til Hildar en föstum skotum á Einar - „Nú á aftur að hringla í embættum“ - DV
📅 27.05.2026 👁️ 1
Kveður með hamingjuóskum til Hildar en föstum skotum á Einar - „Nú á aftur að hringla í embættum“ - DV
Dóra Björt Guðjónsdóttir fráfarandi borgarfulltrúi í Reykjavík hefur tjáð sig um myndun nýs meirihluta Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarf...
Childcare grants worth up to €800 reintroduced in Tenerife
📅 27.05.2026 👁️ 2
Childcare grants worth up to €800 reintroduced in Tenerife
Families in Tenerife will once again be able to apply for financial support towards childcare and nursery costs after the Cabildo officially approved ...
Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 2
Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá VR og fagfélögunum.  „Viðskiptabankarnir skiluðu hátt í 100 milljarða króna hagnaði á síðasta ári eftir skatta. Það...
Mum shot dead outside Sheffield bar named as Shanice Brookes
📅 27.05.2026 👁️ 1
Mum shot dead outside Sheffield bar named as Shanice Brookes
The family of a young woman shot dead outside a bar in Sheffield city centre while she was on a night out have paid tribute to her.South Yorkshire Pol...
Hall­grímur kom í þáttinn sem mót­vægi við of­lof um Davíð - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 2
Hall­grímur kom í þáttinn sem mót­vægi við of­lof um Davíð - Vísir
Hall­grímur Helga­son hefur brugðist á Face­book við þeirri reiðiöldu sem á honum skall í kjölfar þess að RÚV sýndi heima­til­búinn heimildarþátt um D...
Vísbendingar um að öryggisúttekt vanti á Stuðlum
📅 27.05.2026 👁️ 2
Vísbendingar um að öryggisúttekt vanti á Stuðlum
Umboðsmaður Alþingis hefur kallað eftir svörum frá Barna- og fjölskyldustofu vegna ábendingar um að ekki hafi farið fram öryggisúttekt á neyðarvistuna...
Breytingum fórnað fyrir starfs­frið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 2
Breytingum fórnað fyrir starfs­frið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för - Vísir
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ákveðið að mynda meirihluta með Viðreisn og Fram...
Saknar húsnæðismálanna í áherslum meirihlutans
📅 27.05.2026 👁️ 1
Saknar húsnæðismálanna í áherslum meirihlutans
Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins og fráfarandi forseti borgarstjórnar, segir að það sé sláandi að nýr meirihluti hafi ekki minnst á hú...
Héðinn sorgmæddur: „Ég taldi að við værum komin lengra“ - DV
📅 27.05.2026 👁️ 1
Héðinn sorgmæddur: „Ég taldi að við værum komin lengra“ - DV
„Ég er sorgmæddur. Ég taldi að við værum komin lengra, værum umburðarlyndari, opnari og umfram allt kærleiksríkari,“ segir Héðinn Unnsteinsson, fyrrve...
Bók­stafir verði að tölu­stöfum - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 1
Bók­stafir verði að tölu­stöfum - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir að mennta-og barnamálaráðherra áformi að breyta námsmati í grunnskólum með því að skip...
Sigmundur Davíð er hundsvekktur og sendir hamingjuóskir til Dags, Gísla Marteins og Friðjóns - DV
📅 27.05.2026 👁️ 2
Sigmundur Davíð er hundsvekktur og sendir hamingjuóskir til Dags, Gísla Marteins og Friðjóns - DV
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist vera hundsvekktur vegna nýs meirihluta í borginni. Hér hafi verið tækifæri til að breyta r...
Hrókeringar á Norður- og Austurlandi
📅 27.05.2026 👁️ 2
Hrókeringar á Norður- og Austurlandi
Nokkur breyting varð á meirihlutum á Norðurlandi í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna og eru meirihlutaviðræður ýmist búnar eða langt á veg komnar. Ný...
Drauga­gangur, búrtíkur og öngull í rassi - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 1
Drauga­gangur, búrtíkur og öngull í rassi - Vísir
„Vissu­lega er sárt fyrir Ara, þann góða dreng, að húka einn af­síðis með öngulinn í rassinum meðan Hildur slær upp Viðeyjar­veislu fyrir búrtíkur Dag...
Aðstandendur beðnir að sinna garðverkum á hjúkrunarheimili – „Hún er að borga núna 600 þúsund krónur á mánuði“ - DV
📅 27.05.2026 👁️ 2
Aðstandendur beðnir að sinna garðverkum á hjúkrunarheimili – „Hún er að borga núna 600 þúsund krónur á mánuði“ - DV
Margir aðstandendur íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjóli eru reiðir eftir að sendur var út póstur þar sem þeir voru beðnir um að sinna garðverkum á heimil...
Mum, 30, killed in shooting outside Sheffield bar named
📅 27.05.2026 👁️ 2
Mum, 30, killed in shooting outside Sheffield bar named
The family of a young woman shot dead outside a bar in Sheffield while she was on a night out have paid tribute to her.South Yorkshire Police have nam...
„Þetta vita Einar og Björg“ - Vísir
📅 27.05.2026 👁️ 1
„Þetta vita Einar og Björg“ - Vísir
„Mín fyrstu viðbrögð eru að sjálfsögðu þau að ég óska verðandi borgarstjóra og nýjum meirihluta til hamingju. Ég, og við í Samfylkingunni hlökkum til ...