Andy Burnham, þingmaður Verkamannaflokksins, hefur svo gott sem tryggt sig í sessi sem næsti forsætisráðherra Bretlands. Af 403 þingmönnum Verkamannaflokksins hafa 322 nú þegar tilnefnt hann sem arftaka Keir Starmer í embætti leiðtoga flokksins og þar með embætti forsætisráðherra. Enginn annar hefur gefið kost á sér.
Styr hafði lengi staðið um Starmer en hann tilkynnti afsögn sína þann 22. júní. Síðasti naglinn í kistu hans var negldur þegar Burnham var kjörinn þingmaður Verkamannaflokksins í aukakosningum í Makerfield þremur dögum fyrr.
Frestur til þess að tilnefna nýjan leiðtoga rennur út þann 16. júlí. Verði engin mótframboð verður Burnham settur inn sem leiðtogi flokksins og tilvonandi forsætisráðherra á sérstakri flokksráðstefnu daginn eftir.
Eftir fund með Karli Bretakóngi tæki hann svo formlega við forsætisráðherrastólnum í Downingstræti 10 þann 20. júlí.
„Getur ekki verið verri en Starmer“
Burnham, sem oft er kallaður „konungur norðursins“, hefur lofað að koma á betra valdajafnvægi milli norðurs og suðurs. Hann hefur meðal annars lagt til að hluti af skrifstofu forsætisráðherra verði færður til Manchester í Norður-Englandi. Tillagan hefur verið nefnd No. 10 North, sem er vísun í No. 10 Downing Street, eða Downing Stræti 10, heimilisfang skrifstofu forsætisráðherra í London.
Þá hefur Burnham heitið aga í fjármálum og að koma böndum á kostnað við velferðarþjónustu, sem blásið hefur út.
Í viðtali við AFP sagði ónefndur þingmaður Verkamannaflokksins að það væri rétt ákvörðun að veðja á Burnham. „Hann getur ekki verið verri en Starmer.“