Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur lagt fyrir iðnaðarmann að endurgreiða viðskiptavini innborgun inn á verk sem samið var um að iðnaðarmaðurinn myndi taka að sér. Innborgunin var greidd fyrir tveimur árum en iðnaðarmaðurinn hefur enn ekki látið sjá sig til að hefja verkið.Viðskiptavinurinn leitaði til nefndarinnar í nóvember 2025 sem hefur nú úrskurðað í málinu. Krafðist viðskiptavinurinn endurgreiðslu á innborguninni auk bóta vegna fjárhagslegs og ófjárhagslegs tjóns vegna vanefnda iðnaðarmannsins.
Búinn að bíða í tvö ár eftir iðnaðarmanni sem þáði borgun en hefur aldrei mætt