Tólf erlendum föngum hefur verið vísað úr landi síðan breytingar á lögum um fullnustu refsinga tóku gildi. Forstjóri Fangelsismálastofnunar segir standa til að vísa tugum erlendra fanga úr landi næstu misseri.
Á næstu tíu dögum stendur til að senda þrjá erlenda fanga úr landi. Sjö til viðbótar eru með staðfesta brottvísun og búnir að afplána einn þriðja af refsingu sinni.
„Þá vaknar heimild Fangelsismálastofnunar til þess að veita reynslulausn. Það er það sem lögin kveða á um. En það munu auðvitað fleiri detta undir þetta skilyrði á gildistíma laganna, þannig að þetta eru einhverjir tugir til viðbótar,“ segir Ragna Bjarnadóttir, forstjóri Fangelsismálastofnunar.
Alþingi samþykkti í lok maí breytingar á lögum um fullnustu refsinga. Erlendir fangar með lítil eða engin tengsl við landið fá reynslulausn eftir þriðjung refsingar og er brottvísað.
Ragna segir það alfarið á höndum Útlendingastofnunar að ákveða brottvísanir en miðað við upplýsingar sem Fangelsismálastofnun hafi fengið hafi enginn brotamannanna tengsl við Ísland.
Hún segir skipta miklu máli að hafa þessar heimildir sem létti á fangelsiskerfinu.
„Eins og fram hefur komið áður þá er þungt í kerfinu og það skiptir máli að reyna að losa um þau pláss sem við getum losað um á meðan lögin eru í gildi. Þannig að þetta skiptir miklu máli fyrir okkar litla kerfi að gera þetta.“