Seðlabanki Slóvakíu, NBS, hefur lagt fram beiðni um gjaldþrotaskipti líftryggingafélagsins NOVIS fyrir slóvakískum dómstól. Þetta kemur fram á vefsíðu NBS.
Mál Novis vakti mikla athygli hér á landi. Á tímabili voru þúsundir Íslendinga tryggðir hjá fyrirtækinu í gegnum miðlunina Tryggingar og ráðgjöf ehf. sem hafði drjúgar tekjur af samstarfinu. Fjallað var um Novis og starfshætti Trygginga og ráðgjafar í Kveik á síðasta ári.
Beiðni um gjaldþrotaskipti kemur þremur árum eftir að seðlabanki Slóvakíu svipti NOVIS starfsleyfi. Stjórnvaldsákvörðunin tók gildi 5. júní 2023 og frá þeim degi var NOVIS óheimilt að stofna til nýrra samninga.
Afturköllun starfsleyfis eru þyngstu viðurlög sem NBS getur beitt eftirlitsskyldan aðila. NOVIS krafðist strax í kjölfarið ógildingar á ákvörðun NBS um afturköllun starfsleyfins og því frestaði dómstóll í Slóvakíu skipun slitastjóra yfir NOVIS þar til málaferlin kláruðust.
Í svari frá Seðlabanka Íslands kemur fram að beiðnin um gjaldþrotaskipti sé enn óbreytt frá því hún var lögð fram í sumar. Seðlabankinn fylgist áfram með gangi mála og upplýsi ef tilefni er til.
Kveikur ræddi við fjölda Íslendinga sem voru með samning hjá NOVIS í gegnum Tryggingar og ráðgjöf þegar félagið var svipt starfsleyfi. Þeim var öllum ráðlagt á sínum tíma að halda ró sinni og greiða áfram iðgjöld í stað þess að segja samningnum upp.
Árið 2023 voru um fimm þúsund Íslendingar með virkan samning við fyrirtækið. Þeim fór síðan ört fækkandi en voru enn um þúsund undir lok síðasta árs. Ekki liggur fyrir hversu margir Íslendingar eru enn með virkan samning við félagið og hvað verður um þá verði félagið tekið til gjaldþrotaskipta.
Í lok júlí sektaði Fjármálaeftirlitið Tryggingar og ráðgjöf um 35 milljónir króna fyrir að birta rangar og misvísandi upplýsingar á vefsíðu sinni, í upplýsingaskjölum til viðskiptavina og á umboðum viðskiptavina vegna afurða Novis.
Í tilkynningu frá Tryggingum og ráðgjöf kom fram að sektin varði starfsemi sem nær aftur til áranna 2019–2023. Tryggingar og ráðgjöf hafi ekki dreift afurðum NOVIS frá því starfsleyfi félagsins var afturkallað árið 2023. Á þeim tíma hafi félagið lagt áherslu á að styðja viðskiptavini sína vegna þeirra fordæmalausu aðstæðna sem sköpuðust og sinnt áfram þeirri þjónustu sem hvílir á félaginu gagnvart þeim samningum sem enn eru í gildi.
Í Kveik var einnig fjallað um starfshætti sölumanna íslenskra vátryggingamiðlana við sölu á afurðum þýska vátryggingafélagsins VPV sem Tryggingar og ráðgjöf eru umboðsaðili fyrir.
Tryggingar og ráðgjöf hefur undanfarin ár hagnast helst á lífeyristryggingum frá VPV en tíu þúsund Íslendingar færðu séreign eða tilgreinda séreign til fyrirtækisins á einu ári, bæði í gegnum Tryggingar og ráðgjöf og vátryggingamiðlunina Afkomu.
Í svari frá Seðlabanka Íslands til fréttastofu kemur fram að sátt hafi náðst milli Tryggingar og ráðgjafar og bankans í tengslum við Novis en það varði ekki önnur mál sem séu mögulega til skoðunar.
„Þetta tiltekna mál er afmarkað við þá háttsemi sem þar kemur fram. Að öðru leyti er Seðlabanki Íslands bundinn þagnarskyldu um hvort einstök önnur mál kunni að vera til skoðunar eða hvort áform kunni að vera um slíkt. Seðlabankinn tekur hins vegar allar ábendingar sem honum berast til skoðunar, “ segir í svarinu.
Hægt er nálgast nánari upplýsingar um stöðu Novis á vef Seðlabanka Íslands.