Hjúin hafa verið saman í áraraðir og eiga tvo stráka, þá Björn Helga og Jóhann Kristinn.
Brúðkaupið var hið allra glæsilegasta og veðrið upp á sitt allra besta. Gestalistinn var stjörnum prýddur og þar voru meðal annars Þórhildur Þorkelsdóttir starfar sem framkvæmdastjóri Brú Strategy, áhrifavaldurinn og athafnakonan Elísabet Gunnarsdóttir og leikkonan og tónlistarkonan Salka Sól, sem var veislustjóri kvöldsins.
Poppstjarnan Friðrik Dór tróð upp og miðað við myndir og myndbönd frá Instagram var stemningin gríðarlega góð. Hjúkrunarfræðingurinn Þrúður Guðmundsdóttir er góð vinkona hjónanna og birti myndir af sér í veislunni þar sem hún skrifar undir: „Og þá kom að brúðkaupi aldarinnar.“