Stutt er í kosningar í Ísrael en þær verða haldnar 27 október. Ljóst er að þær verða prófsteinn fyrir forsætisráðherrann Benjamin Netanyahu og hægristjórn hans eftir nærri því þriggja ára stríðsrekstur á Gasa, í Íran og í Líbanon.
Skoðanakannanir sýna að mjótt verður á mununum en AFP-fréttaveitan segir að fjöldi brottfluttra sem nú streymir inn í landið virðist hafa komið stjórn Netanjahús á óvart.
Aðeins leyfilegt að kjósa innanlands
Það er ekki síst vegna þess að tugir þúsunda Ísraela hafa yfirgefið landið undanfarin misseri vegna óánægju með stjórnvöld og aðgerðir þeirra. Atkvæði þeirra gætu því haft sín áhrif, en talið er að um fimmtíu þúsund manns hið minnsta haldi heim til að taka þátt í kosningunum.
Margir kjósendur sem AFP ræddi við hafa þó búið lengi erlendis og hafa ekki kosið í mörg ár. Þeir segja hins vegar að komið sé að vendipunkti fyrir Ísrael og því finni þeir sig knúna til að kjósa.
Ástæða þess að ísraelskir borgarar þurfa að ferðast heim er sú að Ísrael er eitt fárra landa sem leyfir ekki kosningar utan landsteinanna.