Fyrsti bíllinn fór yfir brúna snemma í gærmorgun segir í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Gatnamótum Breiðholtsbrautar og Vatnendahvarfs hafi verið lokað fyrir umferð en þau verði endurhönnuð og opni í breyttri mynd í september.
Í nóvember standi til að opna nýja Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar.
„Ökumönnum er bent á að aka til og frá Vatnsendahvarfi í gegnum Vatnsendaveg, nýtt hringtorg við Arnarnesveg og ný gatnamót á Breiðholtsbraut,“ segir í tilkynningunni.
Breiðholtsbraut hafi verið lokað í gærnótt og færsla umferðar hafi gengið samkvæmt áætlun.