Innbrot og hústökur eru daglegt brauð á Stúdentagörðum í Reykjavík. Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta segir stofnunina einungis bregðast við þegar um mynstur sé að ræða.
Íbúar stúdentagarða Háskóla Íslands hafa þurft að þola það að rúður séu brotnar og brotist sé inn, að ókunnugir geri sig heimakomna í almenningsrýmum og steli eigum íbúa sé af þeim.
Félagsstofnun stúdenta á og rekur yfir sextán hundruð leiguíbúðir í Reykjavík sem flestar eru í byggingum með sameiginlegum rýmum.
Heiður Anna Helgadóttir, framkvæmdastjóri FS, segir byggingarnar oft og tíðum fjölmennar og mikinn umgang um innganga. Íbúar þurfi þar af leiðandi að vera meðvitaðir þegar þeir gangi um.
„Við höfum verið að óska eftir því við íbúa þegar svona kemur upp að þeir gangi um húsið með þeim hætti að óviðkomandi aðilar komist ekki inn. Til dæmis með því að passa að hurðir lokist og læsist á eftir þeim, taki ekki úr lás, hleypi ókunnugum ekki inn í húsið og fleira í þeim dúr,“ segir Heiður Anna.
Íbúar eiga að hafa samband við lögreglu
Þegar um mynstur sé að ræða – til dæmis þegar tveir menn brutust ítrekað inn og gerðu sig heimkomna á stúdentagörðunum Gamla garði í haust – bregðist FS við.
„Til dæmis með því að setja upp öryggismyndavélar, öryggis- eða þjófavarnarkerfi og í einhverjum tilfellum höfum við þurft að vera með tímabundna öryggisgæslu við hús,“ segir Heiður.
Hún segir að íbúar eigi alltaf að hafa samband við lögreglu verði þeir varir við innbrot eða að óviðkomandi aðilar haldi sig á görðunum.
„En svo viljum við líka að þau upplýsi okkur þannig að við getum haldið utan um tölfræðina og áttað okkur á því hvaða aðgerðir eru þarfar hverju sinni.“