Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa áreitt kynferðislega stúlku undir lögaldri. Atvikið átti sér stað í orlofshúsi á ónefndum stað þann 2. september árið 2023. Ákærði er sagður hafa káfað á berum brjóstum stúlkunnar og reynt að kyssa hana tungukossi. Segir í ákæru að með þessari háttsemi hafi ákærði sýnt stúlkunni ruddalegt og ósiðlegt athæfi. Foreldri stúlkunnar gerir fyrir hennar hönd kröfu um miskabætur að fjárhæð 2,5 milljónir króna.
Braut gegn barni í orlofshúsi