Í gær var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness mál sem héraðssaksóknari hefur höfðað gegn manni fyrir kynferðislega áreitni gegn börnum og brot gegn barnaverndarlögum.
Brot sín framdi maðurinn í gegnum einkaskilaboð á ónefndum samfélagsmiðli. Brotin voru framin árið 2022. Var maðurinn í samskiptum við átta stúlkur á aldrinum 12 til 14 ára. Hann viðhafði kynferðislegt tal við þær, sendi þeim myndefni af kynferðislegum toga og fékk sumar, meðal annars 12 ára stúlku, til að senda kynferðislegar og myndir og myndbönd af sjálfri sér.
Brotin stóðu yfir frá marsmánuði 2022 og fram í júní sama ár.
Maðurinn er einnig ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa haft í vörslum sínum á farsíma 1034 ljósmyndir og 217 myndbönd sem sýndu börn á kynferðislegan hátt, en lögregla lagði hald á símann daginn sem maðurinn var handtekinn.
Gerðar eru kröfur um miskabætur fyrir hönd brotaþolanna og nema þær ýmist einni, einni og hálfri eða tveimur milljónum króna fyrir hverja stúlku.