Bótasjóður Sameinuðu þjóðanna vegna tjóns og eyðileggingar af völdum loftslagsbreytinga ætlar að úthluta 20 milljónum dollara í neyðaraðstoð til Nepal eftir mannskætt skyndiflóð þar í ágúst. Þetta er í fyrsta sinn sem sjóðurinn gefur vilyrði fyrir greiðslu úr sjóðnum vegna hamfara af völdum loftslagsbreytinga.
Lönd geta aðeins sótt um 20 milljónir dollara að hámarki úr sjóðnum í hverri umsókn. Yfirvöld í Nepal þurfa að leggja fram tillögu fyrir sjóðinn um það hvernig fénu verði varið áður en greitt er úr sjóðnum.
Fjármálaráðherra Nepal, Swarnim Wagle, er ánægður með vilyrðið og segir styrkinn kærkominn. Upphæðin er þó aðeins brotabrot af áætluðum kostnaði stjórnvalda í Nepal, sem hafa metið kostnað við uppbyggingu 4,78 milljarða dollara.
Yfir 1.400 fórust í flóðinu og enn er um 5000 saknað.
Ágreiningur um framlög í sjóðinn
Nokkur ágreiningur var um stofnun bótasjóðsins á loftslagsráðstefnum Sameinuðu þjóðanna árin 2022 og 2023. Þróunarlönd voru mörg hver lítt hrifin af því að greiða í sjóðinn því sum þeirra telja sig bera litla ábyrgð á loftslagsbreytingum en eru engu að síður viðkvæm fyrir þeim. Kallað var eftir því að stórir mengunarvaldar greiddu skaðabætur í sjóðinn.
Frá því að sjóðurinn tók til starfa hefur gagnrýni enn frekar beinst að efnaðri þjóðum og lágum framlögum frá þeim. Um 822 milljónir dollara eru í sjóðnum og ekkert hefur verið greitt úr honum fram til þessa.
Wagle segir að Nepal og hamfarirnar þar yrðu prófsteinn á það hversu mikil alvara væri hjá þjóðum heimsins að hjálpa þróunarlöndum og löndum í viðkvæmri stöðu þegar tjón og eyðilegging yrði af völdum loftslagsbreytinga.