Reykjavíkurborg ætlar ekki að þiggja risaeðlubein sem Marcus Eriksen, hálfíslenskur fornleifafræðingur, vildi færa borginni að gjöf. Hann er framkvæmdastjóri samtaka sem hafa skipulagt og unnið að uppgreftri á risaeðlubeinum í Wyoming-ríki í Bandaríkjunum.
Beinin eru 65 milljón ára gömul af þríhyrnu risaeðlu.
Móðir Eriksen er íslensk og hann á ættingja hér á landi. Því vildi hann gefa borginni 36 risaeðlubein og beinaleifar. Skilyrði fyrir gjöfinni var að þau yrðu gefin í nafni móður hans og yrðu höfð til sýnis á safni eða sýningu í Reykjavík.
Eriksen bauð beinin að gjöf 2022 og var settur á fót starfshópur 2023 til að leggja mat á gjöfina og möguleikana sem væru í henni fólgnir.
Hópurinn komst að þeirri niðurstöðu að því myndi fylgja töluverður kostnaður ef borgin setti upp og héldi við sýningu á beinunum. Auk þess væru óvissuþættir margir. Hópurinn benti jafnframt á að risaeðlubeinin tengdust náttúrusögu Íslands ekki beint og að sýningarhald af þessum toga væri ekki á starfssviði borgarinnar.
Eriksen hugðist gefa beinin og setja þau upp sjálfur gegn greiðslu. 17 beinanna geta verið hluti af þrívíddarprentaðri beinagrind.
Starfshópurinn komst að þeirri niðurstöðu að meginkostnaðurinn væri ekki vegna móttöku gjafarinnar heldur við sýningarhald í framtíðinni. Meðal annars þyrfti að tryggja öryggi beinanna því risaeðlubein hefðu selst fyrir háar fjárhæðir á uppboðum.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær tillögu borgarstjóra um að afþakka gjöfina að ráði starfshópsins.