Franska ríkisstjórnin kom saman á neyðarfundi í morgun vegna óeirða um helgina. Sebastian Lecornu forsætisráðherra ætlar að veita borgarstjórum leyfi til að setja útgöngubann sem er ætlað að vernda borgara og búðir. Ekki hefur verið tilgreint í hvaða borgum.
Yfir 700 eru enn í varðhaldi. Yfir 2000 fyrirtæki urðu fyrir barðinu á mótmælunum og Viðskipta- og iðnaðarráð Frakklands telur að tjón geti hlaupið á hundruðum milljóna evra.
Dagblaðið Le Parisien greinir frá því að einn hafi látist í mótmælum í París og talið er að hann hafi fengið hjartaáfall.
Laurent Nuñez innanríkisráðherra viðurkenndi í morgun að lögreglan hefði misst stjórn á mótmælum í nokkrum borgum. Hann baðst lausnar úr embætti í gær sem Emmanuel Macron forseti Frakklands hafnaði og bað hann um nýtt verklag fyrir lögreglu og öryggissveitir. Macron vill að farið verði í saumana á því hvers vegna mótmælin fóru úr böndunum.
Slyppir og snauðir verslunareigendur
Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður, sem er í Bordeaux í Frakklandi, sagði í hádegisfréttum að stórverslunin Galleries Lafayette í miðborginni hefði verið opnuð fyrir tíu dögum eftir miklar endurbætur en um helgina varð að loka henni eftir rán og gripdeildir.
Verslunin verður þó opnuð aftur síðdegis enda hafa iðnaðarmenn lagt kapp á að opna sem fyrst. Ingólfur Bjarni segir ástandið þó öllu verra hjá mörgum eigendum smærri verslana, líklega um 2.000 búða, eins og þeirra sem selja farsíma eða annað á götum stærri borga. Þar hafi víða verið rænt og ruplað og þeir kaupmenn standi eftir slyppir og snauðir.
Ólíkir hópar mótmælenda
Mótmælin byrjuðu í París um miðjan september og breiddust út um Frakkland.
„Það voru mótmæli menntaskólanema eða framhaldsskólanema og þeir voru að mótmæla því sem þeir töldu vera bágar aðstæður og lélegt ástand menntakerfisins. Það gekk að mestu friðsamlega þar til um helgina, þá bættust við stéttarfélög, háskólanemar, umhverfissinnar og líka Gulu vestin svokölluðu,“ segir Ingólfur Bjarni.
Hann segir að Svörtu vestin sem eru hópar ólöglegra innflytjenda, innflytjendur án skilríkja, stjórnleysingjar og glæpalýður sem stundar rán og gripdeildir hafi einnig verið á mótmælunum. „Þetta eru eiginlega ekki mótmæli út af einhverju afskaplega afmörkuðu, þetta er óánægja með ástand samfélagsins,“ segir Ingólfur Bjarni.
Óvíst hvort mótmælin magnast
Gulu vestin hafa boðað frekari mótmæli á laugardaginn. Ingólfur Bjarni segir erfitt að segja til um hvor mótmælin eigi enn eftir að magnast. Það velti á því hvernig fólki finnist hafa gengið um helgina, hvort þetta hafi verið jákvætt eða neikvætt í huga þess. Þá berist fréttir frá nágrannalöndum af að óánægja með samfélagsástand og dýrtíð breiðist heldur út.
Fréttin hefur verið uppfærð með viðtali við Ingólf Bjarna Sigfússon fréttamann.