Rósir, hortensíur og túlípanar eru blóm sem eru guðdómlega falleg á borðum en ef marka má nýjustu strauma í borðskreytingum, þá er meira um eitthvað sem áður var helst að finna í eldhúsinu. Ávextir, grænmeti og nytjajurtir eru á leiðinni inn sem nýtt og ferskt borðskraut sem talið er eiga eftir að setja svip sinn á sumarið 2026.
Konunglega garðyrkjufélagið í Bretlandi, RHS, sem stendur meðal annars að hinni virtu Chelsea-blómasýningu, birtu garðyrkjuspá sína fyrir árið 2026 á sínum tíma. Þar kom fram að áhugaverðasta þróunin sé ekki endilega það sem vex í beðunum heldur það sem fær að njóta sín inni á heimilinu, á borðum, í gluggum og öðrum sýnilegum stöðum.
Hækkun framfærslukostnaðar leiðir til heimaræktunar
Í færslu frá samtökunum segir að áframhaldandi hækkun framfærslukostnaðar muni leiða til þess að fleiri kjósi að rækta eigið grænmeti og ávexti samhliða hefðbundnum matarinnkaupum. Fyrir þá sem hafa lítið útirými er sérstaklega bent á smærri og skrautleg afbrigði, svo sem borðchilipipar, lítil eggaldin, hangandi gúrkur og klippta vínviði, sem þjóna ekki aðeins nytsemi heldur einnig fagurfræðilegu hlutverki á heimilinu.
RHS telur einnig að sólber eigi eftir að njóta vaxandi vinsælda á ný, meðal annars vegna nýrra og sætari afbrigða sem henta vel til ferskrar neyslu. Þá er einnig búist við auknum áhuga á heimaræktuðum tómötum og ýmsum tínslujurtum og villtum jurtum, meðal annars hjólkrónu, fíflum, maríulyklum, humlum og myntu.
Sumarlegur ljómi kemur með ávöxtum
Að skreyta heimilið með ferskum ávöxtum hefur marga góða kosti. Það má borða borðskreytingarnar, þær eru litríkar og fallegar og búa til sumarlegan ljóma sem erfitt er að dempa. Eitt þarf ekki að víkja fyrir öðru, bóm og ávextir geta saman myndað fullkomið samspil. En eitt er víst að fegurðin í náttúrunni er engu lagi líkt.


