Pam Bondi, fyrrverandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, bar í dag vitni frammi fyrir þingmönnum, á bak við luktar dyr, um rannsóknina á máli Jeffreys Epstein.
Vitnisburðurinn var í minni sniðum en búist var við, og olli demókrötum og fórnarlömbum Epsteins vonbrigðum, sem saka ríkisstjórn Trump um að halda leyndum upplýsingum í máli kynferðisafbrotamannsins.
Bondi gaf skýrslu fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildarinnar í formi viðtals en ekki sem eiðsvarið vitni, þrátt fyrir kröfur beggja flokka um svör varðandi meðferð hennar á skjölum dómsmálaráðuneytisins um Epstein.
Sakaðir um yfirhylmingu
Þetta víðtæka deilumál hefur ásótt Donald Trump Bandaríkjaforseta stóran hluta af öðru kjörtímabili hans. Demókratar, fórnarlömb Epstein og sumir repúblikanar saka embættismenn um að hylma yfir með öllum gögnum málsins, þrátt fyrir að dómsmálaráðuneytið haldi því fram að það hafi birt allt sem því er skylt að gera opinbert samkvæmt lögum.
„Engar fleiri lygar. Engin frekari yfirhylming. Það er kominn tími til að Pam Bondi svari spurningum okkar,“ sagði Robert Garcia, leiðtogi demókrata í eftirlitsnefndinni, á samfélagsmiðlum fyrir yfirheyrsluna.
Bondi varð aðalpersóna í Epstein-málinu eftir að hafa sagt í fyrra að svokallaður viðskiptavinalisti hins látna fjármálamanns væri á borði hennar til yfirferðar. Dómsmálaráðuneytið og FBI sögðu síðar að enginn slíkur listi væri til og engin áform væru um að birta frekari upplýsingar.
Trump rak Bondi í apríl þegar óánægja með meðferð hennar á deilumálinu jókst, þótt hún hafi síðar verið skipuð í vísinda- og tækniráð forsetans.