Donald Trump forseti Bandaríkjanna hyggst leggja 100% toll á innflutning samheitalyfja til Bandaríkjanna. Hann greindi frá þessu í færslu á Truth Social í kvöld.
Í færslunni sagði Trump engan toll verða lagðan á innflutning lyfja þangað til í ágúst 2028 þegar hann verður 100%. Einu ári síðar yrði tollurinn orðinn 200%.
Með þessu vill forsetinn auka framleiðslu lyfja í Bandaríkjunum og hegna fyrirtækjum sem ákveða að koma ekki á fót verksmiðjum í Bandaríkjunum innan áðurgreinds tveggja ára frests.
„Markmiðið með þessu er að vernda bandarísku þjóðina,“ ritaði Trump á Truth Social. Þar sagði hann innflutningstolla á frumlyf hafa skilað árangri og að tollunum yrði ekki breytt. „Lyfjaverksmiðjur rísa vítt og breitt um Bandaríkin, á hraða sem aldrei hefur sést áður,“ ritaði Trump.
Í apríl skrifaði forsetinn undir forsetatilskipun þess efnis að 100 innflutningstollur yrði lagður á frumlyf. Með því að lækka verð á lyfjum sínum eða skuldbinda sig til að framleiða lyfin í Bandaríkjunum gátu lyfjaframleiðendur samið um undanþágur.
Fyrr í dag greindi Bandaríkjaforseti frá því að hann ætlaði að leggja 50% toll á innflutning fjölda vörutegunda frá Kanada.