„Auðvitað er ég glaður að það eru margir sem vilja sækja nám hjá okkur,“ segir Kristinn Þorsteinsson, skólameistari í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.
Skólinn var sá sem flestir settu í eitthvað sæti þegar þeir sóttu um skólavist í framhaldsskóla í vetur. Alls setti 341 nemandi skólann sem fyrsta val og er það aukning um 24% milli ára.
Kristinn segir það hryggilegt hve mörgum nemendum sem vilja stunda nám við skólann þurfi að neita um skólavist. „Svo þetta eru mjög blendnar tilfinningar.“
Hann telur að taka þurfi innritunarkerfið á höfuðborgarsvæðinu til skoðunar í heild sinni. Of margir verði fyrir vonbrigðum.
„Nánast hvergi tíðkast sá siður að raða í skóla alfarið eftir einkunnum þegar kemur að framhaldsskólum. Ég held að við ættum að endurskoða þá nálgun,“ segir hann.
Kristinn vill ekki álykta hvað gæti skýrt aukna aðsókn í FG. Skólinn vinni gott starf en það eigi við um aðra skóla.
„Ég held að það sé enginn framhaldsskóli á landinu sem er ekki að vinna gott starf. Að mörgu leyti tel ég að þeir skólar sem hafa minnstu aðsóknina séu að vinna besta starfið því þeir eru að sinna nemendum sem þurfa mest á hjálp að halda,“ segir Kristinn.