Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands, segir það ekki vera að ástæðulausu að heilbrigðisstarfsfólk vari við notkun peptíða. Rætt er við Björn Rúnar í Morgunblaðinu í dag en töluverð umræða hefur verið um peptíð að undanförnu.
Dæmi eru um að peptíð gangi kaupum og sölum á svörtum markaði og er til dæmis rætt við einkaþjálfarann og vaxtaræktariðkandann Viktor Snær Oliversson í umfjöllun Morgunblaðsins.
Hann gengst við því að nota svokallað Retatruitide, sem oft er kallað Reta, sem hefur svipaða virkni og þyngdarstjórnunarlyfið Ozempic.
„Ég hugsaði að ef ég gæti fundið leið til að vera ekki svangur og pirraður þá væri ég til í að prófa það. Reta er bara Ozempic á sterum,“ segir hann við Morgunblaðið.
Björn segir aftur á móti að varast beri notkun þessara efna og mikilvægt sé að „taka til í orðanotkuninni“ við notkun slíkra efna. Segir hann að heilbrigðisstarfsfólk hafi gríðarlegar áhyggjur af notkun þessara efna sem ekki er ávísað af læknum. Dæmi séu um dauðsföll erlendis af völdum þar sem fólk notar lyfin án eftirlits.
„Ef þú ert að sprauta þig með einhverju efni sem á annaðhvort að veikja eða styrkja ónæmiskerfið þitt og það er ekkert ójafnvægi í gangi sem búið er að staðfesta með rannsóknum, þá getur það verið stórhættulegt og haft margvíslegar alvarlegar afleiðingar. Ef efnið er ekki nógu hreint getur þú hreinlega fengið lífshættulega sýkingu sem getur jafnvel dregið þig til dauða,“ segir Björn og bætir við að varanlegur líffæraskaði geti komið fram mörgum árum síðar.
Nánar er fjallað um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.