Kótelettan, tónlistar- og grillhátíð á Selfossi, er orðin ein af fjölmennustu hátíðum landsins á ári hverju. Maðurinn á bak við hana heitir Einar Björnsson en það sem sennilega færri vita er að hann hefur verið hluti af íslenskum tónlistarbransa í nærri fjóra áratugi. Hann hóf feril sinn sem ungur gítarleikari en aðeins 17 ára gamall steig hann yfir á hina hlið sviðsins og varð hljóðmaður. Sú ákvörðun átti eftir að marka líf hans og leiða hann inn í samstarf við stærstu nöfn íslenskrar tónlistar, á Þjóðhátíð og síðar að stofnun Kótelettunnar á Selfossi.
Björgvin breytti öllu: „Með okkur tókst mikil vinátta sem ríkti nánast óslitið allar götur“