Samtök Pauls Watson skipstjóra heita 250 þúsund krónum hverjum þeim sem getur veitt rauntímaupplýsingar um staðsetningu hvalveiðiskipa Hvals hf., leiði þær til þess að skipið Bandero geti stöðvað för þeirra.
Í færslu samtakanna á Facebook segir að Bandero sé á hvalveiðimiðum en að þau geti ekki stöðvað hvalveiðiskipin því Landhelgisgæslan deili upplýsingum um staðsetningu Bandero með hvalveiðiskipunum, svo þau geti forðast það.
„Við þurfum ykkar aðstoð,“ segir í færslunni. „Saman getum við hjálpast að við að stöðva atvinnuhvalveiðar á Íslandi.“