Talsverðar umferðartafir hafa orðið á gatnamótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar síðan opnað var fyrir umferð um nýja Breiðholtsbrú fyrir viku. Mikil umræða hefur skapast á samfélagsmiðlum þar sem skipst er á að kenna Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ eða Vegagerðinni um tafirnar.
Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar, segir ástandið tímabundið.
„Við erum enn þá í framkvæmd og gatnamótin eru ekki komin í fulla virkni. Það eru akreinar sem eru ekki komnar í notkun þannig að þetta er bara bráðabirgða, tímabundið ástand eins og það er í dag.“
Gatnamótin munu virka eins og til var ætlast
Til að liðka fyrir umferðarflæði verður ljósastýringin við gatnamótin fínstillt. Guðmundur býst við að gatnamótin verði komin í fulla virkni í byrjun september.
Enn þá eru framkvæmdir við gatnamótin við Vatnsendahvarf. Guðmundur segir að fullkláruð muni þau breyta umferðarflæðinu. Þegar framkvæmdum ljúki muni gatnamótin virka eins og til var ætlast.
Í sjónvarpsfréttum þann 10. júlí var sagt frá opnun brúarinnar. Bryndís Friðriksdóttir svæðisstjóri Vegagerðarinnar sagði þá að ökumenn þyrftu að vera meðvitaðir um að gatnamótin væru enn framkvæmdasvæði.
„Við erum enn þá með þrengingu á Breiðholtsbrautinni í aðdragandanum að gatnamótunum við Vatnsendahvarf,“ sagði Bryndís.
Gagnrýnin ótímabær
Guðmundur segir gagnrýni ótímabæra þegar framkvæmdum er ekki enn lokið. Sveitarfélögin hafi í samstarfi við Vegagerðina komist að niðurstöðu um útfærslu gatnamótanna.
„Það var langur aðdragandi að þessu verkefni. Sveitarfélögin sættust um hvernig gatnamótin ættu að verða í framtíðinni þannig að ég held að menn ættu að dæma það þegar þau eru fullbúin. Við erum í tímabundnu ástandi eins og er.“