Berrössuð hjón og endurtekið efni - Vísir

Berrössuð hjón og endurtekið efni - Vísir

Berrössuð hjón og endurtekið efni - Vísir

Djöflar – Borgarleikhúsið. Frumsýning 8. október.

Höfundur: Lars Norén. Leikstjóri: Stefán Jónsson. Leikmynd: Börkur Jónsson. Búningar: Helga I. Stefánsdóttir. Leikarar: Hilmir Snær Guðnason, Vala Kristín Eiríksdóttir, Íris Tanja Flygenring og Haraldur Ari Stefánsson.

Stofudrama á sterum

Djöflar segja frá parinu Frank og Katarínu sem búa í eins konar lúxusíbúð á óræðum stað og tíma. Fram undan er jarðsetning móður Franks og þau eiga von á gestum sem láta þó aldrei sjá sig. Til að bjarga kvöldinu bjóða þau til sín nágrönnum sínum af neðri hæðinni – Tómasi og Jennu, alþýðufólki með barnmargt heimili (og sín eigin leyndarmál í pokahorninu) sem líta öfundaraugum á hönnunarhúsgögn og lúxusinn í íbúðinni fyrir ofan sig.

Hilmir Snær, Vala Kristín, Haraldur Ari og Íris Tanja fara með hlutverk í sýningunni.Borgarleikhúsið

Tómas og Jenna eru eins og illa gerðir hlutir í partýi sem verður sífellt skrýtnara. Samskipti Franks og Katarínu einkennast af ofbeldi – bæði líkamlegu og andlegu. Eftir því sem áfengið tekur völdin verða samskiptin hömlulausari og martraðakenndari. Það er varla hægt að kalla þetta hefðbundið stofudrama – þrátt fyrir að formið á verkinu sé vissulega slíkt. Þetta er í raun stofudrama á sterum sem veitir manni innsýn í dimmustu kima mannsálarinnar.

Áttavillt nútímafólk

Lars Norén skrifar verk um fólk sem þjáist af hinum ýmsu kvillum, geðveiki, þunglyndi, óvissu um eigin kynhneigð eða áfengissýki. Þetta sagði hann vera fylgikvilla „hins áttavillta nútímamanns“. Í verkum Norén er það ekki lygin sem ógnar persónunum heldur einmitt sannleikurinn. Persónurnar tala nánast látlaust og það er allt uppi á borðum.

Djöflar einkennast af yfirgengilegum öskrum.Borgarleikhúsið

Djöflar falla vel undir þetta stílbragð. Jenna lætur móðan mása þegar hún hittir Frank í dyrunum í upphafi verksins. Frank lætur einræðurnar dynja á eiginkonu sinni og gestum þeirra. Tómas er kannski sá sem í upphafi heldur sig mest til baka en þegar áfengið hefur kikkað inn lætur hann eiginkonu sína heyra það og lætur undan hinum dýrslegri hvötum í lokahluta verksins. Og Katarina spilar skák við Frank, notar sjálfsskaða, hótanir um skilnað og ástarjátningar sem dynja á honum á víxl.

Öll samskipti í verkinu jaðra við að vera fáránleg á köflum – svo ýkt eru þau. Á köflum er maður staddur í tragedíu í anda Eugene O'Neill en aðra stundina finnst manni maður vera í leikhúsi fáránleikans.

Klaufaleg leikstjórn

Stefán Jónsson ákveður í þessari uppsetningu að setja í fimmta gír. Hann stígur pedalann í botn alveg frá fyrstu senunni sem er eins konar erótískt dansatriði þar sem Vala Kristín vaggar sér fáklædd í kynlífsrólu við tónlist Rosalíu. Það eru ekki margar mínútur liðnar af uppsetningunni þegar allar spjarir eru horfnar og Frank hefur hálfpartinn nauðgað Katarínu með höndunum.

Vandinn við svona ágenga byrjun er að Stefáni gengur illa að toppa sig í hamaganginum þegar líður á verkið. Skortur á samkennd er tilfinningin sem leitaði einna helst á mig í þessari uppsetningu. Manni er gjörsamlega sama um þetta furðulega fólk sem gerir ekkert annað en að hreyta ónotum, lemja og berja hvort annað.

Kannski var þetta ótrúlega sjokkerandi árið 1984 þegar verkið var frumsýnt í Svíþjóð – eflaust var verkið samið í einhvers konar viðspyrnu eða samtali við þá strauma og stefnur sem voru þá ríkjandi í leiklist á þeim tíma; en hvers vegna að grafa þetta upp og hrella okkur Íslendinga með því mörgum áratugum síðar?

Endurtekið efni

Ég hef ýmislegt út á leikarana að setja en ég skildi samt minna í því hvernig var valið í hlutverk. Mér fannst Hilmir Snær og Vala Kristín ekki passa í hlutverk Katarínu og Franks. Verkið segir manni að þau eigi að hafa verið gift í um áratug og ekki tekist að eignast börn (á meðan Tómas og Jenna mega varla snertast án þess að geta barn). En kannski var það aldursmunurinn á Hilmi og mótleikurum hans sem flækti málin óþarflega – sérstaklega þegar kom að sambandi Franks og Katarínu. Ég hefði verið til í að sjá eldri leikkonu í hlutverki Katarínu eða yngri leikara í hlutverki Franks.

Því miður verð ég svo að gefa Hilmi Snæ sjálfum falleinkunn. Hann er frábær leikari og hefur verið í talsverðu framboði síðustu leikár. Mér fannst hann ögra sjálfum sér og sýna manni hvers hann er megnugur bæði í Ketti á heitu blikkþaki, Óresteiu og Hamlet (þar fékk hann líka fínan mótleik frá Sólveigu Arnarsdóttur). En í þessu verki stígur hann aldrei út fyrir þægindarammann, maður hefur séð þetta allt áður, taktana og raddbeitinguna. Stundum fannst mér ég vera að horfa á Hilmi Snæ leika Hilmi Snæ. Hann getur gert miklu betur.

Hilmir og Íris Tanja í hlutverkum sínum.Borgarleikhúsið

Ég get ekki gagnrýnt Völu Kristínu fyrir að leggja sig ekki fram. Hún ærslast um sviðið, nakin og blóðug. Stóra vandamál Völu er hins vegar raddbeitingin. Röddin hennar er föst í hálsinum og hana skortir hreinlega betri tækni í svona stórt hlutverk. Um leið og samtölin breyttust í öskur og rifrildi heyrði maður varla í henni og hún þarf að vinna meira í tækninni ef hún ætlar sér hlutverk af þessari stærðargráðu í framtíðinni.

Mér fannst Haraldur Ari ná að búa til trúverðuga mynd af manni sem þjáist af minnimáttarkennd, hómófóbíu og losta. Jenna, í meðförum Írisar Tönju, varð hins vegar hálfgerð skopmynd – manneskja sem þú býst kannski frekar við að hitta á lokaðri deild en í matarboði og persóna hennar kannski sú sem er einna ótrúverðugust í leikritinu.

Undarleg staðfæring

Þýðing verksins er í höndum Hlínar Agnarsdóttur, sem hefur þýtt önnur verk Lars Norén hér á landi. Það var ágætis flæði í textanum og stíllinn virkaði hvorki gamaldags né nútímalegur. Það fór hins vegar í taugarnar á mér þegar komu allt í einu tilvísanir í íslenskan veruleika. Skyndilega er farið að tala um Björn Jörund (hefur eflaust verið sænskur tónlistarmaður í frumtextanum). Mér fannst þetta truflandi þó að einhverjum hafi kannski fundist brandarinn fyndinn.

Annað svona dæmi var í búningunum. Jenna er með barn á brjósti og mætir svo í peysu með léttmjólkurlógóinu á. Ég geri ráð fyrir að þetta hafi ekki verið dulin auglýsing heldur frekar tilvísun leikstjóra í að hún sé hálfgerð mjólkurkú. Fyrir utan hvað tilvísunin er augljós þá dregur þessi peysa mann líka inn í íslenskan raunveruleika og samtíma, alveg eins og notkun Katarínu á nikótínpúðum.

Ef þú ætlar að staðfæra og nútímavæða verkið þá er ekki nóg að bæta bara við tilvísunum í íslenska poppmenningu, það þarf mun heildstæðari skoðun á verkinu sjálfu. Það er erfitt að átta sig á hvar maður er staddur. Íbúðin lúkkar eins og lúxusíbúð á dýrasta stað – Skuggahverfinu til dæmis. En íbúðin á neðri hæðinni er hálfgert hreysi. Tómas og Jenna tilheyra varla sömu stétt og Katarína og Frank? Af hverju búa þau þá í sömu blokk? Kannski var svona stéttablöndun algeng í Svíþjóð á árunum sem verkið er skrifað en hér á Íslandi meikar þetta ekki sens.

Æsilegur endasprettur

Þrátt fyrir galla er eitt og annað sem hægt er að njóta í Djöflum. Ef maður endist fram yfir hlé þá er lokakaflinn nokkuð skemmtilegur. Samtölin og atburðarásin verða svo yfirgengileg og atriði sem minnti mann á költklassíkina The Big Lebowski hafði ákveðið afþreyingargildi. Lokamyndin þar sem Frank skríður aftur inn í móðurkvið var sjónrænt falleg en líka svolítið tilgerðarleg.

Það er áhugavert að hugsa um hvað Lars Norén er að gera í þessu leikriti. Þetta er einhvers konar rannsókn á því hversu langt manneskjur geta gengið í grimmd og öfgum. Það er verið að fjalla um heimilisofbeldi, kúgun, misnotkun og kannski hvernig manneskjur festast í vítahring andlegs ofbeldis. 

Haraldur Ari og Hilmir Snær stíga smá dans.Borgarleikhúsið

Norén neitar að benda á sökudólga. Þegar Tómas ræðst á Frank með barsmíðum fagnar Frank því hlæjandi og biður um meira – kannski eru gamaldags barsmíðar eins og hvíld frá hinu yfirgengilega andlega ofbeldi sem gegnsýrir öll samskipti Franks og Katarínu.

Því miður týnast öll þau fínu blæbrigði sem eflaust er að finna í leikritinu í uppsetningu sem tekur sig allt of alvarlega og leggur áherslu á að sjokkera okkur með brjóstum og blóði. Ef tilgangurinn var að kynna Lars Norén fyrir nýrri kynslóð leikhúsfólks á Íslandi held ég að það hljóti að vera betri verk eftir hann til þess fallin en Djöflar. En svo er spurning hvort upplifun manns á verkinu mótist af lélegu leikaravali, slappri frammistöðu aðalleikaranna og algjörum skorti á fínni blæbrigðum í leikstjórn.

Niðurstaða

Fyrir aðdáendur sænskra vandamálaleikrita er nóg af vandamálum í Djöflum. Sýningin er langdregin og manni stendur á sama um persónurnar. Leikstjórinn virðist uppteknastur af því að hafa leikarana sem fáklæddasta og maður áttar sig ekki á erindi Djöfla við íslenskt samfélag í dag.

#berrössuð #efni #endurtekið #hjón #vísir

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262947858d/berrossud-hjon-og-endurtekid-efni

📰 Aðrar fréttir

Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heima­til­búinn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heima­til­búinn - Vísir
Magnea samdi tillöguna sem fulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar, lögðu fram og var samþykkt í ráðinu í dag. „Tillaga...
Með gaddakúlu og sprautunálakylfu - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Með gaddakúlu og sprautunálakylfu - Vísir
Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta honum ákærurnar.  Í fyrstu ákærunni er honum gefið að sök að hafa veist að mann...
„Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
„Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ - Vísir
Um er að ræða undarlegt mál sem hefur farið eins og eldur í sinu samfélagsmiðla síðustu daga. Málið má rekja aftur til síðustu helgar þegar Clarkson h...
Sjórinn flæddi yfir bryggjuna á Skagaströnd
📅 14.10.2026 👁️ 0
Sjórinn flæddi yfir bryggjuna á Skagaströnd
„Það var flóð í hádeginu. Þá stóð pusið alveg yfir bryggjuna,“ segir Baldur Magnússon, hafnarvörður á Skagaströnd.Þar hafa hviður farið upp í allt að ...
„Það væri mjög miður“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
„Það væri mjög miður“ - Vísir
Þetta segir Finnbjörn Hermannsson í samtali við fréttastofu í morgun, rétt áður en þing Alþýðusambandsins hófst.  Þingið hófst klukkan tíu í morgun á ...
Litli spítalinn án samnings og ráð­herra sér ekkert svig­rúm - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Litli spítalinn án samnings og ráð­herra sér ekkert svig­rúm - Vísir
Litli spítalinn er einkarekin heilbrigðisþjónusta sem er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68. Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að verke...
Brösugleg byrjun hjá nýjum tals­manni Trumps - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Brösugleg byrjun hjá nýjum tals­manni Trumps - Vísir
Zacharia er 42 ára gömul. Hún starfaði í skamman tíma fyrr á árinu sem talsmaður heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna og hefur verið gestur hjá bæði Fox...
Telur enga hættu stafa af strandaðri sjókví
📅 14.10.2026 👁️ 0
Telur enga hættu stafa af strandaðri sjókví
Tóma sjókví rak á land í Patreksfirði um miðjan september. Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir að þau viti af kvínni og eigend...
Kalla eftir skýrslu um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum
📅 14.10.2026 👁️ 1
Kalla eftir skýrslu um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum
Tíu þingmenn úr Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki kalla eftir skýrslu frá Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum. Markmið...
Kallar 25 ára þak á verð­tryggð lán sýndar­mennsku - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Kallar 25 ára þak á verð­tryggð lán sýndar­mennsku - Vísir
Þær tókust á um áformin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Arna Lára er formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og Hildur á einnig sæti í nefndinn...
Fluttu til Íslands og náðu að spara 840 þúsund krónur á einum mánuði – „Með öllu inniföldu“
📅 14.10.2026 👁️ 1
Fluttu til Íslands og náðu að spara 840 þúsund krónur á einum mánuði – „Með öllu inniföldu“
Ung spænsk kona flutti til Íslands ásamt kærasta sínum til að vinna í veitingageiranum. Hún segist ná að spara mikinn pening í hverjum mánuði.Myndband...
Sally Rooney says her books will be removed from sale in UK over Palestine Action support
📅 14.10.2026 👁️ 1
Sally Rooney says her books will be removed from sale in UK over Palestine Action support
The Irish writer is best known for novels such as Normal People, Intermezzo and Conversations With Friends.
Le Pen boðar minni framlög Frakka til ESB
📅 14.10.2026 👁️ 1
Le Pen boðar minni framlög Frakka til ESB
Marine Le Pen, leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar, og mögulega næsti forseti Frakklands, segir að Frakkar ættu að skera niður framlög sín til Evrópus...
Security guards catch suspect after jewellery raid at Gran Canaria shopping centre
📅 14.10.2026 👁️ 1
Security guards catch suspect after jewellery raid at Gran Canaria shopping centre
Security guards caught and held a suspected robber after masked raiders used fire extinguishers and smashed display cabinets during a jewellery shop r...
Toilet paper and secret recorders: What we know about the arrest of the Saudi OpenAI engineer
📅 14.10.2026 👁️ 0
Toilet paper and secret recorders: What we know about the arrest of the Saudi OpenAI engineer
Abdulrahman Alfozan had worked for the AI giant for more than a year before he was arrested by the FBI.
Ríkið tók yfir vinsælustu fréttastöð Tyrklands
📅 14.10.2026 👁️ 1
Ríkið tók yfir vinsælustu fréttastöð Tyrklands
Lögreglan í Tyrklandi gerði rassíu í húsakynnum Halk TV, vinsælustu fréttastöð landsins, í morgun. Útsendingum var hætt og fólk hliðhollt stjórnvöldum...
Segja að Bandaríkin hjálpi núna Rússlandi
📅 14.10.2026 👁️ 1
Segja að Bandaríkin hjálpi núna Rússlandi
Segja að Bandaríkin hjálpi núna Rússlandi Úkra­ínskir emb­ætt­is­menn segja að Banda­ríkin hafi hótað að stöðva miðlun upp­lýs­inga um eld­flauga­skot...
Container ship sinks in Strait of Hormuz after being hit by projectile, Singapore says
📅 14.10.2026 👁️ 1
Container ship sinks in Strait of Hormuz after being hit by projectile, Singapore says
All 21 sailors on the Singapore-flagged GFS Pride were evacuated safely after it was hit by an projectile on Tuesday, maritime authorities say.
Saksóknari segir Russell Brand vera vægðarlausan nauðgara
📅 14.10.2026 👁️ 1
Saksóknari segir Russell Brand vera vægðarlausan nauðgara
Saksóknari í máli breska grínistans Russels Brand segir hann hafa verið vægðarlausan og einbeittan kynferðisbrotamann þegar aðalmeðferð í máli gegn ho...
Hvað er misnotkun á markaðsráðandi stöðu?
📅 14.10.2026 👁️ 2
Hvað er misnotkun á markaðsráðandi stöðu?
Samkeppnisaðilar Ölgerðarinnar segja fyrirtækið markvisst reyna að útiloka vörur sínar á börum, veitingahúsum, útihátíðum og hjá nemendafélögum. Þetta...
Segir Ölgerðina halda Red Bull frá börum – Pantaði Red Bull en fékk drykk frá Ölgerðinni
📅 14.10.2026 👁️ 1
Segir Ölgerðina halda Red Bull frá börum – Pantaði Red Bull en fékk drykk frá Ölgerðinni
Tveir af stærstu næturklúbbum landsins sögðust hafa fengið greiddar milljónir fyrir að eiga ekki viðskipti við umboðsaðila Red Bull. Þetta segir Friðj...
Ráðist inn í skóla og veist að nem­endum eða starfs­fólki - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Ráðist inn í skóla og veist að nem­endum eða starfs­fólki - Vísir
Kristín Björnsdóttir er formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Hún segir mikilvægt að tryggja öryggi bæði nemenda og starfsfólks. „Samfélagið hefur þróas...
How to find Cheap Flights to and from the Canary Islands
📅 14.10.2026 👁️ 2
How to find Cheap Flights to and from the Canary Islands
Whether you live on the islands and want to get back to the UK for Christmas, or you're planning a winter escape to Tenerife or Lanzarote, the price o...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Tommustokkurinn, spunagreindin og beislið
📅 14.10.2026 👁️ 2
Sigvaldi Einarsson skrifar: Tommustokkurinn, spunagreindin og beislið
Þegar ég var tólf ára fékk ég vinnu í gamalli og góðri byggingarvöruverzlun, og já, hún var skrifuð með zetu. Í búðinni voru tvö verkfæri sem mótuðu h...
Feðgar í málaferlum – Dánarbú föðurömmunnar dró dilk á eftir sér
📅 14.10.2026 👁️ 2
Feðgar í málaferlum – Dánarbú föðurömmunnar dró dilk á eftir sér
Sonur stefndi föður sínum fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og krafði hann um 10,6 milljónir króna vegna láns sem hann hafði veitt föðurömmu sinni til faste...
Lögreglan varar foreldra við : Yfir 300 ungmenni með fölsuð rafræn skilríki sem gætu haft alvarlegar afleiðingar
📅 14.10.2026 👁️ 2
Lögreglan varar foreldra við : Yfir 300 ungmenni með fölsuð rafræn skilríki sem gætu haft alvarlegar afleiðingar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu þar sem foreldrar eru varaðir við VPN-stillingu, sem rúmlega 300 ungmenni nota til að fa...
Afdrifaríkur flutningur á píanói - Reyndu árangurslaust að neita því að vinnuslys hefði átt sér stað
📅 14.10.2026 👁️ 2
Afdrifaríkur flutningur á píanói - Reyndu árangurslaust að neita því að vinnuslys hefði átt sér stað
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt flutningafyrirtæki til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum um 1,6 milljónir króna í vangoldin laun auk dráttarv...
Framkvæmdastjóri Sambíóanna stígur fram með sína reynslu af Ölgerðinni
📅 14.10.2026 👁️ 2
Framkvæmdastjóri Sambíóanna stígur fram með sína reynslu af Ölgerðinni
Alfreð Ásberg, framkvæmdastjóri Sambíóanna, segir að sem viðskiptavinur Ölgerðarinnar í 14 ár þá finnist honum umfjöllun Kveiks um fyrirtækið gefa of ...
Svona var ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
📅 14.10.2026 👁️ 2
Svona var ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
Svona var ástandið í fárviðrinu á Siglufirði Vind­hviður fóru upp í 55 metra á sek­úndu. Brak var „á ferð og flugi“ um Siglu­fjörð í dag í fár­viðri, ...
Svona er ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
📅 14.10.2026 👁️ 1
Svona er ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
Svona er ástandið í fárviðrinu á Siglufirði Vind­hviður fóru upp í 55 metra á sek­úndu. Brak var „á ferð og flugi“ um Siglu­fjörð í dag í fár­viðri, þ...
Ó­þolandi leyndarhyggja ríki um niður­stöður PISA-prófa - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Ó­þolandi leyndarhyggja ríki um niður­stöður PISA-prófa - Vísir
Jón Pétur var einn þeirra sem sté í pontu þingsins undir dagskrárliðnum „Störf þingsins“ og sagði að strax árið 2009 hefði Menntamálastofnun áttað sig...
Vill skýr við­brögð við trassa­skap í losunar­málum í lög - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Vill skýr við­brögð við trassa­skap í losunar­málum í lög - Vísir
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær. Því er sagt ætlað að styrkja umgjörð loftslag...
Taskmaster Ís­land snýr aftur - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 3
Taskmaster Ís­land snýr aftur - Vísir
Fimm vandlega valdir keppendur hafa nú sett sig í stellingar fyrir upptökur á annarri þáttaröð íslensku útgáfunnar af hinum heimsfrægu skemmtiþáttum T...
Burnham careful before Zelensky meeting but promises Ukraine won't leave 'empty handed'
📅 14.10.2026 👁️ 2
Burnham careful before Zelensky meeting but promises Ukraine won't leave 'empty handed'
The UK's prime minister meets with Volodymyr Zelensky after a rocky week for the Ukraine president.
Burnham careful as he meets Zelensky but promises Ukraine won't leave 'empty handed'

Burnham treads carefully in Zelensky visit, balancing Trump and Ukraine
📅 14.10.2026 👁️ 0
Burnham treads carefully in Zelensky visit, balancing Trump and Ukraine
The UK's prime minister meets with Volodymyr Zelensky after a rocky week for the Ukraine president.
Beachgoers rescue sea turtle in Lanzarote
📅 14.10.2026 👁️ 3
Beachgoers rescue sea turtle in Lanzarote
A group of beachgoers rescued a loggerhead sea turtle at Caleta de Caballo beach in Lanzarote on Sunday after discovering the animal in need of assist...
Fjúkandi þök og talsvert tjón á Siglufirði
📅 14.10.2026 👁️ 3
Fjúkandi þök og talsvert tjón á Siglufirði
Siglufjörður virðist fara hvað verst út úr óveðrinu sem gengur yfir landið. Þar hefur vindur farið upp í 55 metra á sekúndum í hviðum.Samkvæmt tilkynn...
Vonskuveður í Færeyjum
📅 14.10.2026 👁️ 3
Vonskuveður í Færeyjum
Sama lægðakerfi og valdið hefur sögulega djúpri lægð hér á landi í morgun veldur einnig aftakaveðri í Færeyjum.Í Þórshöfn mælast yfir 20 metrar á sekú...
Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent - Vísir
Meirihluti ráðsins samþykkti breytingarnar á fundi 12. október og vísaði þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar. Örn Arnarson, f...
Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 2
Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps
Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps Banda­ríkin vilja rífa niður Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stól­inn. Ísraelar líkja fyrr­ver­andi dó...
Bloggari tilkynnti eigið andlát - „Ef þú ert að horfa á þetta myndband þá er ég, því miður, ekki lengur hér“
📅 14.10.2026 👁️ 2
Bloggari tilkynnti eigið andlát - „Ef þú ert að horfa á þetta myndband þá er ég, því miður, ekki lengur hér“
Breski bloggarinn Charlie Anderson-Read er látin 41 árs að aldri eftir erfiða baráttu við krabbamein. Frá þessu greindi Charlie sjálf í myndbandi til ...
Að­eins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann of­beldi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Að­eins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann of­beldi - Vísir
Andri og fimm aðrir, þar á meðal barnsmóðir hans, tengdafaðir og bróðir, hlutu fangelsisdóma á mánudag fyrir að frelsissvipta mann, kúga úr honum fé, ...
Ný yfirlýsing frá Réttrúnaðarkirkjunni: Hætta á að söfnuðurinn verði húsnæðislaus
📅 14.10.2026 👁️ 2
Ný yfirlýsing frá Réttrúnaðarkirkjunni: Hætta á að söfnuðurinn verði húsnæðislaus
Réttrúnaðarkirkjan segir raunverulega hættu vera á því að söfnuðurinn standi uppi án staðar til bænahalds þar sem leigusamningur um núverandi húsnæði ...
Einn handtekinn fyrir að selja hundruðum ungmenna fölsuð skilríki
📅 14.10.2026 👁️ 2
Einn handtekinn fyrir að selja hundruðum ungmenna fölsuð skilríki
Einn hefur verið handtekinn vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á sölu á fölsuðum rafrænum skilríkjum. Sá handtekni er grunaður um að h...
Lög­reglan varar for­eldra við „Island Surge VPN“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Lög­reglan varar for­eldra við „Island Surge VPN“ - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Einn hefur verið handtekinn vegna málsins en hann er grunaður um að hafa selt hun...
Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni - Vísir

Russell Brand was a 'sexual predator', says prosecution as rape trial begins
📅 14.10.2026 👁️ 2
Russell Brand was a 'sexual predator', says prosecution as rape trial begins
The comedian and actor faces charges including rape and sexual assault from six female complainants who have never met each other, a court is told.
Russell Brand was a 'sexual predator', prosecution alleges as rape trial begins

Hætta á lengri biðlistum ef ekki fæst meira fé á fjárlögum
📅 14.10.2026 👁️ 2
Hætta á lengri biðlistum ef ekki fæst meira fé á fjárlögum
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er reiknað með að heildarútgjöld ríkissjóðs verði 1.765 milljarðar króna. Mikil áhersla er lögð á að skila hallala...