Íslendingar eru gjarnir á að skipta yfir í ensku þegar þeir ræða við fólk sem talar íslensku með hreim, leitar að orðum eða þarf lengri tíma til að svara. Þótt þetta sé yfirleitt gert af góðum hug getur það haft neikvæð áhrif á möguleika fólks til að ná tökum á íslenskunni.Þetta segir Guðlaug Stella Brynjólfsdóttir, aðjunkt í íslensku sem öðru máli og verkefnastjóri Íslenskuþorpsins, í pistli sem birtist á Vísi í morgun.
Bendir á algengan ósið Íslendinga – Margir gera þetta af góðum hug