Hægt er að fylgjast með streymi af fundinum að neðan. Fundarstjóri er Martin Ingi Sigurðsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands.
Dagskrá fundarins
- Sigríður Zoëga, dósent við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðadeild Háskóla Íslands og deildarstjóri við Landspítala – Verkir og meginþættir í meðferð verkja
- Freyja Jónsdóttir, dósent við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands – Flokkar verkjalyfja, aukaverkanir og langvinn notkun
- Helga Zoega, prófessor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum Háskóla Íslands – Notkun á ópíóíðum á Íslandi og samanburður við önnur lönd
- Adam Bauer, réttarefnafræðingur á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands og doktorsnemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands – Ópíóíðar og ketamín á höfuðborgarsvæðinu: Greining á lyfjaávísunum, fráveitugögnum og fölsuðum lyfjum
- Anna Bryndís Blöndal, dósent við Lyfjafræðideild og forstöðumaður Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu – Ábyrg notkun verkjalyfja – niðurtröppun og endurskoðun lyfjameðferðar
Að loknum erindum verða pallborðsumræður.